Innlent

Fljúgandi hálka á Akureyri og víða annars staðar á Norðurlandi

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Mikið svell er víða á Akuryeri en þessa mynd birti lögreglan á Norðurlandi eystra á Facebook-síðu sinni í morgun.
Mikið svell er víða á Akuryeri en þessa mynd birti lögreglan á Norðurlandi eystra á Facebook-síðu sinni í morgun.
Lögreglan á Norðurlandi eystra vekur athygli á því mjög hált er nú víða í umdæminu, meðal annars á Akureyri.

Á Facebook-síðu lögreglunnar segir að nú þegar hafi verið tilkynnt um tvö hálkuslys í bænum og voru tveir fluttir á slysadeild með áverka á höfði.

Hvetur lögregla vegfarendur til að fara varlega í þeim aðstæðum sem nú eru á götum, bílastæðum og gangstígum bæjarins en hitinn er kominn upp í tíu stig á Akureyri.

Er unnið að því að gera vegi og götur greiðfærari en það tekur sinn tíma, segir á Facebook-síðu lögreglunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×