Skoðun

Fljótandi eða fast gengi – lærdómur frá norrænum ríkjum

Lars Christensen skrifar
Norðurlöndin fimm, Danmörk, Svíþjóð, Noregur, Finnland og Ísland, eru stofnanalega og menningarlega mjög svipuð og öll fimm ríkin eru mjög opin fyrir alþjóðaviðskiptum en þau hafa einnig rausnarleg velferðarkerfi.

En frá því að efnahags- og fjármálakreppan hófst um allan heim 2008 hefur frammistaða ríkjanna fimm verið merkilega ólík.

Þannig hafa Svíþjóð og Ísland náð sér að fullu eftir kreppuna. Það átti líka við um Noreg í fyrstu, en verðfallið á olíu síðustu tvö árin hefur komið illa við norska hagkerfið sem byggist á olíuútflutningi.

Tvö ríki hafa hins vegar dregist alvarlega aftur úr – Danmörk og Finnland.

Of stífri peningamálastefnu um að kenna

Kerfislæg vandamál í Danmörku (of háir skattar og óhóflega rausnarlegt velferðarkerfi) og Finnlandi (stór opinber geiri og mjög stífur vinnumarkaður) hafa örugglega einnig haft sitt að segja.

Það er hins vegar erfitt að líta fram hjá þeirri staðreynd að bæði Finnland og Danmörk hafa fast gengi – Finnland sem meðlimur evru­svæðisins og Danmörk í gegnum fastgengiskerfi sem er fest við evruna. Þetta þýðir að í tilfellum beggja landanna hefur Seðlabanki Evrópu sett peningamálaskilyrði sem henta þörfum alls evrusvæðisins en ekki einstakra landa.

Öfugt við þetta hafa Svíþjóð, Ísland og Noregur fljótandi gengi sem þýðir að seðlabankar þessara landa hafa getað stýrt peningamálastefnunni samkvæmt þörfum þessara hagkerfa.

Þetta hefur tvisvar verið sérstaklega mikilvægt síðan 2008. Fyrst þegar upphaflega áfallið reið yfir 2008 og síðan árið 2011 þegar evrópski seðlabankinn hækkaði tvisvar stýrivexti með hörmulegum afleiðingum.

Til að viðhalda föstu gengi gagnvart evrunni herti Danmörk peningamálastefnu sína verulega árið 2008 með því að hækka vexti og grípa sterkt inn í á gjaldeyrismörkuðum á meðan Noregur, Svíþjóð og Ísland gátu leyft verulegt gengisfall á gjaldmiðlum sínum og lækkað vexti til að vega upp á móti neikvæðum áhrifum kreppunnar. Þetta er líklega ástæða fyrir því að Danmörk fór verr út úr bankakreppunni en Noregur og Svíþjóð (Ísland er augljóslega allt annar handleggur).

Hin óráðlega ákvörðun Seðlabanka Evrópu að hækka vexti 2011 kom frekar illa út fyrir bæði Danmörku og Finnland á meðan „fleytendurnir“ gátu að mestu forðast að „flytja inn“ mistök evrópska seðlabankans. Afleiðingin varð sú að „bilið“ á milli norrænu „fleytendanna“ og „fastgengislandanna“ breikkaði enn.

Það er vissulega ekki gefið að fast gengi þýði sjálfkrafa veikari hagvöxt, en síðan 2008 hefur fast gengi Danmerkur gagnvart evrunni og evru­aðild Finnlands sannarlega stuðlað að því að löndin tvö hafa „dregist aftur úr“ á Norðurlöndunum og bæði löndin hefðu ugglaust staðið sig betur með fljótandi gengi í stað þess að fylgja peningamálastefnu Seðlabanka Evrópu.




Skoðun

Skoðun

Bestu árin

Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Sigríður Gísladóttir skrifar

Sjá meira


×