Tíska og hönnun

Flíkin sem stenst tímans tönn

Prabal Gurung
Prabal Gurung
Ef það er einhver flík sem er ómissandi í fataskápinn er það hvíta skyrtan.

Hvít skyrta er flík sem passar við allt og má finna í óteljandi útgáfum frá flestum tískuhúsum heims í gegnum tíðina.

Í upphafi var skyrtan einungis ætluð herramönnum en er nú orðin lykilflík í fataskápum beggja kynja.

Tískuhúsin eru á einu máli um að hvíta skyrtan eigi heima í vor- og sumartískunni sem, með hækkandi sól, ekki er seinna vænna að fara að huga að. 

Hér að neðan fylgja myndir af hvítum skyrtum af tískupöllunum, frá merkjum tískuhúsa á borð við Balenciaga, Acne, Alexander Wang, Phillip Lim, Prabal Gurung, Bottega Veneta, Victoria Beckham og Nina Ricci.

Sjón er sögu ríkari.

3.1 Phillip Lim
Nina Ricci
Bottega Veneta
Victoria Beckham
Balenciaga
Victoria Beckham
Alexander Wang
Acne





Fleiri fréttir

Sjá meira


×