Innlent

Flestir vilja Ólaf Ragnar eða Guðna Th

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Ólafur Ragnar og Guðni Th.
Ólafur Ragnar og Guðni Th. V'isir/Ernir/Anton
59 prósent þeirra sem tóku afstöðu í nýrri skoðanakönnun nefndu annaðhvort Ólaf Ragnar Grímsson eða Guðna Th. Jóhannesson á nafn þegar spurt var hvern þátttakendur vildu sem forseta ef þeir mættu nefna hvaða Íslending sem vera skal.

Tímaritið Frjáls Verslun kannaði dagana 26. apríl til 1. maí fylgi hugsanlegra frambjóðenda til forseta. Alls tóku 74% prósent þátttakenda afstöðu til spurningarinnar. Meirihluti þeirra sem afstöðu tóku nefndu þá tvo frambjóðendur sem mest fylgi fengu, Ólaf Ragnar Grímsson og Guðna Th. Jóhannesson. Allir aðrir sem nefndir voru fengu innan við tíu prósent fylgi.

Guðni Th. hefur ekki tilkynnt um hvort hann muni bjóða sig fram eða ekki en hann mun kynna ákvörðun sína á fundi á fimmtudaginn næstkomandi.

Þá var Katrín Jakobsdóttir var oftar nefnd til sögunnar en forsetaframbjóðendurnir Andri Snær Magnason og Halla Tómasdóttir. Átta prósent aðspurðra nefndu Katrínu á nafn en sex prósent Andra Snæ og eitt prósent nefndi Höllu.

Fjölmargir voru nefndir á nafn í könnunni og má þar nefna Berglindi Ásgeirsdóttur sendiherra sem orðuð hefur verið við forsetaframboð að undanförnu. Davíð Oddsson var nefndur af tveimur prósentum aðspurðra, líkt og Berglind og Þóra Arnórsdóttir sem bauð sig fram í síðustu forsetakosningum. Þá fékk Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis, eitt prósent fylgi.

Hér fyrir neðan má sjá lista yfir aðra sem nefndir voru en fengu minna en eitt prósent fylgi.

Ari Trausti Guðmundsson, Arnþór Henrysson, Ásta Dís Óladóttir, Ástþór Magnússon, Baldur Þórhallsson, Bergþór Pálsson, Björg Thorarensen, Björk Guðmundsdóttir, Bogi Ágústsson, Bæring Ólafsson, Egill Einarsson (Gillz), Eiríkur Bergmann, Guðfinna Bjarnadóttir, Guðni Ágústsson, Guðrún Nordal, Hjálmar Jónsson, Hörður Finnbogason, Jón Gnarr, Jón Steinar Gunnlaugsson, Kári Stefánsson, Kristín Ingólfsdóttir, Kristín Vala Ragnarsdóttir, Lilja Mósesdóttir, Linda Pétursdóttir, Magnús Ingi (Texas-Maggi), Máni í Harmageddon, Ólafur Jóhann Ólafsson, Ólafur Stefánsson, Ómar Ragnarsson, Páll Óskar Hjálmtýsson, Ragna Árnadóttir, Sigrún Stefánsdóttir, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, Sturla Jónsson, Vigfús Bjarni Alfreðsson, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Þorgrímur Þráinsson, Þorsteinn Pálsson, Þórarinn Eldjárn, Össur Skarphéðinsson.



Á morgun verða frekari niðurstöður könnunarinnar birtar á vefsíðu Frjálsrar verslunar.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×