Innlent

Flestir vilja Eirík aftur á Séð og heyrt

Jakob Bjarnar skrifar
Stuðningur við Eirík sem nýjan ritstjóra Séð og heyrt virðist hafa komið útgefandanum í opna skjöldu. Eiríkur steinliggur, segir Ingvi Hrafn.
Stuðningur við Eirík sem nýjan ritstjóra Séð og heyrt virðist hafa komið útgefandanum í opna skjöldu. Eiríkur steinliggur, segir Ingvi Hrafn.
Björn Ingi Hrafnsson fjölmiðlamaður tilkynnti á Facebook-síðu sinni í gær að hann væri að leita að nýjum ritstjóra Séð og heyrt, sem senn færi aftur af stað eftir stutt útgáfuhlé, og auglýsti eftir slíkum. Þannig liggur fyrir að Ásta Hrafnhildur Garðarsdóttir mun ekki halda áfram sem ritstjóri þar á bæ. Líkast til hafa viðbrögðin komið útgefandanum nokkuð á óvart því þeir sem svara eru flestir á því að rétti maðurinn í starfið sé Eiríkur Jónsson blaðamaður. Fáir aðrir eru nefndir til sögunnar sem vænlegir kandídatar. Eiríkur er einmitt fyrrverandi ritstjóri tímaritsins.

Eiríkur myndi steinliggja

Ýmsir fjölmiðlamenn eru áfram um þetta og má þar nefna Helga Seljan, Ómar R. Valdimarsson og Þórarinn Þórarinsson. Og úr skemmtanageiranum eru menn á borð við konung kokteiltónlistarinnar, André Bachmann og Karl Sigurðsson Baggalútur einnig þeirrar skoðunar að enginn sé betur til þess fallinn að stýra Séð og heyrt en Eiríkur.

Ingvi Hrafn Jónsson, sem nýverið seldi Birni Inga sjónvarpsstöð sína ÍNN þó hann haldi áfram með vinsæla þætti sína Hrafnaþing, er einnig á því að Eiríkur sé rétti maðurinn: „Eiríkur Jónsson myndi steinliggja og gera að auki vikulegan ÍNN þátt með stæl.Allt í lagi að hann sé með síðuna sína on the side,“ segir Ingvi Hrafn, léttur í bragði.

Björn Ingi er þögull

Nema, málshefjandinn er þögull yfir þessari einstefnu hugmyndanna. Kann að skipta máli í því samhengi að Hreinn Loftsson er í hluthafahópi útgáfufélags hans Pressunnar. Hreinn, sem nýverið seldi Birni Inga og Pressunni tímaritaútgáfu sína, sem meðal annars gaf út Séð og heyrt, sagði í samtali við Fréttatímann að það sú sala tengdist ekki því að hann væri hluthafi í Pressunni. Nema, Hreini og Eiríki lenti saman, það fór fyrir brjóstið á Hreini að Eiríkur væri samhliða störfum sínum sem ritstjóri að reka sinn eigin fréttavef, EiríkurJónsson punktur is. Það leiddi svo til þess að Eiríkur hvarf á braut eins og Vísir greindi samviskusamlega frá.

Eiríkur vill ekki tjá sig

En, Björn Ingi er ekki sá eini sem er þegjandalegur um það hvaða stefnu atvinnuauglýsing hans tók. Þegar Eiríkur var spurður hvað hann vildi um þennan mikla stuðning segja þá kom þetta svar:

„Ekkert.“

Ekkert? Er Björn Ingi búinn að hafa samband?

„Vísa í svarið,“ segir Eiríkur.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×