Innlent

Flestir hjúkrunarfræðingar neikvæðir og líst ekki nógu vel á samninginn

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Þung hljóð er í hjúkrunarfræðingum vegna nýrra kjarasamninga sem félagsmenn í Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga greiða nú atkvæði um. Formaður félagsins segir atkvæðagreiðsluna fara vel af stað en hann segir marga tvístígandi.



Ólafur G. Skúlason, formaður félags hjúkrunarfræðinga, segir að meirihluti þeirra hjúkrunarfræðinga sem komu á kynningar á nýjum kjarasamningi séu neikvæðir í garð samningsins.



Misjafnt hljóð í hjúkrunarfræðingum

„Ég er nú búinn að ferðast um allt land og klára þessar kynningar. Við fórum yfir kjarasamninginn og hvað í honum felst. Hljóðið í fólki er svona misjafnt. Sumir eru jákvæðir en flestir eru neikvæðir og líst ekki nógu vel á þetta. Við verðum bara að sjá hvað tíminn segir,“ segir hann.



Atkvæðagreiðsla hófst um samninginn á laugardag og er þátttaka í atkvæðagreiðslunni fyrstu dagana góð að sögn Ólafs.



„Ég hef ekki aðgang að niðurstöðunum fyrr en kosningu er lokið. Það er einn starfsmaður í húsinu sem hefur aðgang að þessu öllu saman og þátttakan er ágæt það sem af er,“ segir hann.



Vill ekki spá fyrir um niðurstöðuna

Ólafur segist reikna með góðri þátttöku í atkvæðagreiðslunni. „Það er nú erfitt að segja til um það á þessum sumartíma en hjúkrunarfræðingar eru mjög duglegir við að taka þátt í svona atkvæðagreiðslum. Þannig að ég á von á því að það verði mjög góð þátttaka,“ segir hann.



Hann vill ekki spá neitt um niðurstöðu atkvæðagreiðslunnar.



„Nei ekki að svo stöddu. Eins og ég segi þá er fólk frekari tvístígandi, það eru mjög margir sem eru ekki alveg ákveðnir og ég held að þetta komi ekki í ljós fyrr en þarna alveg undir lokin,“ segir Ólafur.



Atkvæðagreiðslan stendur til 15. júlí og kemur þá í ljós hvort samningurinn verði samþykktur eða felldur.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×