Innlent

Flestir á Vogi hafa notað mörg vímuefni

Svavar Hávarðsson skrifar
Áfengissýki hefur lengi verið helsta viðfangsefnið á Vogi.
Áfengissýki hefur lengi verið helsta viðfangsefnið á Vogi. vísir/heiða
Hlutfall þeirra sem voru fíknir í ólögleg vímuefni og leituðu sér lækninga á Sjúkrahúsinu Vogi fór á rúmlega tíu árum úr 18,5 prósentum af sjúklingahópnum í 49 prósent árið 2006. Sú staða hefur síðan lítið breyst og helmingur þeirra sem leita á Vog á hverju ári á við vandamál að stríða vegna fíknar í ólögleg vímuefni.

Á tímabilinu frá 1994 til 2006, fjölgaði tilfellunum úr tæplega 300 á hverju ári í 907. Síðan hefur fjöldi tilfella lítið breyst og hlutfallið haldist það sama. Sjúkdómsgreiningar þar sem vandinn er bundinn við lyf, sem jafnframt eru vímuefni, hafa verið um 500 síðustu fimm árin, eða um 30 prósent.

Þórarinn Tyrfingsson
Þetta kemur fram í nýútgefnu ársriti meðferðarsviðs SÁÁ 2016, en höfundur þess er Þórarinn Tyrfingsson, forstjóri Sjúkrahússins Vogs.

Þórarinn segir frá því hversu mikil breytingin var frá þeim tíma er SÁÁ var stofnað og byrjaði að bjóða áfengis- og vímuefnasjúklingum meðferð – þá var áfengi vímuefnið sem nær allir notuðu og áttu í vanda með. Á því voru þó vissulega fáeinar undantekningar. Einstaka sjúklingar voru fíknir í tvö vímuefni eða fleiri.

„Síðan þá hafa fleiri og fleiri sjúklingar komið til meðferðar sem kalla má fjölfíkla, eða eru háðir fleiri en einu vímuefni, auk tóbaks. Mikil aukning varð á þessu á árunum 1983 til 1985 og svo aftur frá 1996 til 2000. Á Sjúkrahúsinu Vogi forðast læknar að nota fjölfíklagreininguna í vímuefnagreiningunni en greina þess í stað og nefna öll þau vímuefni sem sjúklingurinn er fíkinn í. Með þessu verða vímuefnagreiningarnar nákvæmar og samanburðarhæfari milli ára,“ segir Þórarinn.

Í tölfræði SÁÁ fær helmingur sjúklinganna á Vogi aðeins eina vímuefnagreiningu, en árið 2015 fengu þrír af hverjum fjórum áfengisgreiningu, þrettán prósent fengu kannabisgreiningu og um tólf prósent lyfjagreiningu. Einn af hverjum fjórum sjúklingum á Vogi var fíkinn í þrjú eða fleiri vímuefni á Vogi árið 2015, en hafa ber í huga að þeir hafa notað miklu fleiri vímuefni en þeir greinast fíknir í, bætir Þórarinn við.

„Vegna þess hversu algengt er að sjúklingar séu háðir fleiri en einu vímuefni er mikilvægt að greina hvaða vímuefni veldur mestum vanda hjá þeim.“ 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×