Viðskipti erlent

Fleiri vörur Samsung virðast springa

Samúel Karl Ólason skrifar
Þvottavélarnar sem sagðar eru springa eru hlaðnar ofan frá.
Þvottavélarnar sem sagðar eru springa eru hlaðnar ofan frá. Vísir/Getty
Svo virðist sem að það séu ekki eingöngu snjallsímar Samsung séu að springa í loft upp. Neytendastofa Bandaríkjanna gaf í gær út yfirlýsingu vegna yfirstandandi rannsóknar á þvottavélunum. Búið er að höfða mál gegn Samsung þar í landi þar sem galli á þvottavélunum er sagður geta valdið meiðslum og skemmdum.

Um er að ræða sérstaka tegund þvottavéla sem framleiddar voru frá mars 2011 til apríl á þessu ári.

Í tilkynningu frá Samsung segir að í mjög sjaldgæfum tilfellum geti þvottavélarnar titrað óeðlilega mikið og geti það leitt til skemmda. Ekki er vitað til þess að nokkur hafi slasast vegna gallanns.

Lögmannafyrirtækið sem hefur höfðað mál gegn Samsung heldur því fram að gallinn geti leitt til þess að þvottavélar springa. Það hafi jafnvel gerst á fyrsta þvotti.

Samsung hefur þurft að innkalla minnst 2,5 milljónir Samsung Galaxy Note 7 snjallsíma á árinu eftir að margir þeirra brunnu eða jafnvel sprungu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×