Glamour

Fleiri vilja hætta á samfélagsmiðlum heldur en reykingum

Ritstjórn skrifar
Munum við sjá meira af því að fólk taki sér pásu frá samfélagsmiðlum árið 2017?
Munum við sjá meira af því að fólk taki sér pásu frá samfélagsmiðlum árið 2017? Mynd/Getty
Samkvæmt Badvine.com sem gerði rannsókn á 1.500 Bretum um áramótin eru mun fleiri sem ætla sér að hætta á samfélagsmiðlum heldur en reykingum. Um 10% af þátttakendum ætluðu sér að hætta á samfélagsmiðlum en aðeins 8% ætluðu sér að hætta að reykja.

Mikið hefur verið rætt seinustu ár um áhrif samfélagsmiðla á líf og líðan fólks. Svo virðist sem margir eru komnir með upp í kok á öllu því sem fylgir Internetinu og þá sérstaklega vefsíðum þar sem notendur deila lífi sínu. 






×