Innlent

Fleiri þunganir unglingastúlkna hér á landi

Hrund Þórsdóttir skrifar
Fæðingar unglingsstúlkna eru fleiri hér á landi en á öllum hinum Norðurlöndunum, þrátt fyrir að þeim hafi fækkað mikið. Snemmbær þungun getur verið fátæktargildra og bæta þarf aðgengi að getnaðarvörnum.

Í nýlegri skýrslu Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna um velferð barna, kom fram að nær hvergi í vesturhluta Evrópu væru þunganir unglinga jafnalgengar og hér á landi.

Ef litið er á tölur sést þó að fæðingum íslenskra unglingsstúlkna hefur fækkað mikið og hér má sjá þróunina hjá mæðrum undir 18 ára aldri, frá árinu 1982.

Svipuð þróun hefur átt sér stað hjá hinum Norðurlandaþjóðunum, en athygli vekur að Ísland trónir ávallt á toppnum. Fæðingar unglingsstúlkna eru alltaf flestar hér á landi.

Ragnheiður Ingibjörg Bjarnadóttir, fæðingarlæknir, segir hugarfarsbreytingu eina af ástæðum fækkunarinnar, þar sem ungar konur kjósi að mennta sig og fresta barneignum. Hún telur fæðingar ungra mæðra ekki stórt þjóðfélagslegt vandamál.

„En hinsvegar held ég að þetta geti verið mjög erfitt fyrir þær stúlkur sem lenda í að eignast börn á meðan þær eru ennþá á barnsaldri," segir Ragnheiður Ingibjörg.

Helga Sól Ólafsdóttir, félagsráðgjafi á kvennadeild, bendir á að börn séu á forræði foreldra sinna til átján ára aldurs.

„Samfélagið gerir ekki ráð fyrir þeim sem foreldrum þannig að öll aðstoð sem samfélagið annars veitir er mikið skert."

Hún bendir einnig á að snemmbær þungun geti verið fátæktargildra fyrir ung pör og erfitt geti reynst að ljúka námi. Sumir fái stuðning en ekki allir.

„Og þá er sáralítið annað heldur en að treysta á að fá aðstoð frá samfélaginu, sem er ekki neitt til þess að hrópa húrra yfir."

Þær fagna því að neyðarpillan fáist hér án lyfseðils en benda á að á Norðurlöndunum séu getnaðarvarnir ókeypis upp að átján ára aldri.

„Neyðarpillan kostar þrjú þúsund krónur og ef þú átt þær ekki til, áttu í engin hús að venda. Getnaðarvarnir eru dýrar á Íslandi og kannski gæti bætt aðgengi að þeim komið í veg fyrir margar óvelkomnar þunganir.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×