Bíó og sjónvarp

Fleiri þættir af Making a Murderer

Samúel Karl Ólason skrifar
Efnisveitan Netflix tilkynnti í dag að fleiri þættir af Making a Murderer yrðu framleiddir. Þættirnir, sem fjalla um þá Steven Avery og Brendan Dassey nutu gífurlegra vinsælda í fyrra. Nýju þættirnir munu einnig fjalla um þá og tilraunir þeirra til að fá morðdóma þeirra fellda niður.

„Við erum einstaklega þakklátar fyrir viðtökurnar og stuðninginn sem þættirnir fengu. Áhugi áhorfenda hefur tryggt að sögunni er ekki lokið og við munum áfram skrásetja atburði eins og þeir gerast,“ segja þær Laura Ricciardi go Moira Demos, framleiðendur þáttanna í tilkynningu.

Ekki liggur enn fyrir hvenær þættirnir verða frumsýndir, né hve margir þeir verða.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×