Bíó og sjónvarp

Fleiri leikarar bætast við Bakk-hópinn

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Leikarahópurinn fyrir kvikmyndina Bakk sem áætluð er í tökur í sumar stækkar ört.

Þau Gunnar Hansson, Víkingur Kristjánsson og Saga Garðarsdóttir fara með aðalhlutverk myndarinnar en Þorsteinn Gunnarsson, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Þorsteinn Bachmann, Hanna María Karlsdóttir, Hallgrímur Ólafsson, Halldóra Geirharðsdóttir og Jóhannes Haukur Jóhannesson hafa bæst í hóp leikara sem munu taka að sér hlutverk í myndinni.

Myndin segir frá tveimur æskuvinum sem ákveða að bakka hringinn í kringum Ísland til styrktar langveikum börnum.

Um er að ræða gamanmynd eftir Gunnar Hansson sem hann og Davíð Óskar Ólafsson leikstýra saman og Mystery framleiðir. Tökur hefjast á næstu vikum og verður tökuliðið á ferð um land allt fram í september.


Tengdar fréttir

Bakka hringveginn

Ný íslensk gamanmynd er væntanleg en hún ber nafnið Bakk. Í myndinni bakka aðalleikarar myndarinnar hringinn í kringum landið og lenda í ýmsu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×