Innlent

Fleiri kvartanir vegna ferðaþjónustu hér á landi

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Ferðamenn gæða sér á landsins gæðum.
Ferðamenn gæða sér á landsins gæðum. Vísir/Anton Brink
Um helmingur þeirra kvörtunarmála sem Evrópska neytendastofan fær til athugunar hér á landi tengjast ferðaþjónustu. Er það heldur hærra hlutfall mála vegna ferðaþjónustu en neytandastofan glímir við í öðrum ríkjum innan evrópska efnahagssvæðisins. Það er túristi.is sem greinir frá þessu.

Evrópska neytendastofan er starfrækt innan ríkja landa sem eiga aðild að EES. Hlutfall kvartana vegna ferðaþjónustu á EES-svæðinu sem Evrópska neytendastofan fær inn á sitt borð er um 30%. Hér á landi er talan í kringum 50% og telur Hildigunnur Hafsteinssdóttir, stjórnandi Evrópsku neytendastofunnar hér á landi að hár hlutur kvartana vegna ferðaþjónustu megi skýra með því hversu mikið af ferðamönnum komi til landsins.

Evrópska neytendastofan hefur verið starfrækt síðan 2005 og geta Íslendingar, sem og aðrir íbúar innan EES, leitað til hennar. Talsverður hluti þeirra sem leita til hennar hér á landi eru erlendir ferðamenn og oftar en ekki er umkvörtunarefnið íslenskar bílaleigur.

Leigutakar rukkaðir um tjón þegar heim er komið

Ívar Halldórsson, lögfræðingur hjá Evrópsku neytendastofunni segir að oftar en ekki telji þeir sem leiti til neytendastofunnar að þeir hafi ekki fengið nógu góðar upplýsingar og aðvaranir vegna sand- og öskutjóns. Mögulega geri ferðamenn sér ekki grein fyrir því að þessar aðstæður geti skapast á Íslandi með tilheyrandi möguleika á tjóni á eignum enda séu tjón vegna sand- og öskufoks sjaldgæf í Evrópu, utan Íslands.

Einnig komi mál til þeirra þar sem erlendir ferðamenn hafa verið rukkaðir vegna tjóns á bílaleigubílum sem þeir kannist ekki við hafa valdið. Reikningar vegna þessara atvika berast leigutökum fyrst eftir að heim er komið og þeir eiga því erfitt með að mótmæla. Ívar segir að forðast megi slík mál með því að bjóða leigutakanum að vera viðstaddur lokaskoðun en ekki allar bílaleigur bjóði upp á slíkt.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×