Viðskipti innlent

Fleiri Íslendingar til útlanda en árið 2007

Samúel Karl Ólason skrifar
Alls fóru rúmlega 45 þúsund Íslendingar frá Keflavíkurflugvelli í síðasta mánuði en það er töluvert meira en í nóvember 2007 þegar 41 þúsund Íslendingar flugu frá landinu.
Alls fóru rúmlega 45 þúsund Íslendingar frá Keflavíkurflugvelli í síðasta mánuði en það er töluvert meira en í nóvember 2007 þegar 41 þúsund Íslendingar flugu frá landinu. Vísir/GVA
Íslendingar hafa ekki verið jafn duglegir við að fara til útlanda í nóvember síðan í nóvember 2007. Alls fóru rúmlega 45 þúsund Íslendingar frá Keflavíkurflugvelli í síðasta mánuði en það er töluvert meira en í nóvember 2007 þegar 41 þúsund Íslendingar flugu frá landinu.

Samkvæmt frétt Túrista fóru um fimmtán hundruð Íslendingar frá landinu á degi hverjum í mánuðinum, en það eru nægilega margir til að fylla um átta hefðbundnar farþegaþotur.

Þá hefur annað met fallið á þessu ári. Samkvæmt talningu Ferðamálastofu á brottförum Íslendinga höfðu 495 þúsund íslenskir farþegar farið til útlanda í lok nóvember. Árið 2007 náði fjöldinn nærri því 470 þúsundum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×