Viðskipti innlent

Fleiri hundruð Íslendinga hafa pantað iPhone 6

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Verðskrá nýja Símans.
Verðskrá nýja Símans.
Þótt ekki liggi ljóst fyrir hvenær iPhone 6 snjallsíminn kemur til Íslands hafa fleiri hundruð Íslendingar þegar pantað símann. Ódýrasta útgáfa símans kostar tæpar 120 þúsund krónur hjá Símanum.

Íslendingar geta keypt símann hjá íslenskum símafyrirtækjum innan tíðar. Forsala fer til að mynda fram bæði hjá Vodafone og Símanum en forsala hjá síðarnefnda fyrirtækinu hófst fimmtudaginn fyrir viku. Á átta dögum hafa á fimm hundrað manns pantað sér nýja símann hjá Símanum. Flestir án þess hvorki að vita hvorki komudag snjallsímans né verð.

Reikna má með að fjölmargir hafi einnig pantað sér síma hjá Vodafone en ekki náðist í upplýsingafulltrúa Vodafone við vinnslu fréttarinnar.

Verðskráin. Smellið á myndina til að skoða í hærri upplausn.
Síminn birti í dag verðskrá iPhone 6. Verðið hleypur á bilinu 119.900 krónur til 169.900 krónur. Samkvæmt upplýsingum frá Símanum er iPhone 6 með 16 GB minni vinsælastur en fast á hæla hans kemur 64 GB útgáfa. Vinsælasti liturinn er space gray.

Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir, upplýsingafulltrúi Símans, segir í samtali við Vísi að sala á iPhone 4s fari að ljúka. Síminn muni selja síðustu símana sem til séu á lager. En mun verðið á iPhone 5 símunum lækka?

„Almennt hafa eldri síðar lækkað í verði þegar nýir koma á markað þannig að búast má við því einnig nú.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×