Innlent

Fleiri heyrnarlausir gætu átt rétt á miskabótum

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Menntamálaráðherra vill ekki áfrýja dómi héraðsdóms í máli Snædísar.
Menntamálaráðherra vill ekki áfrýja dómi héraðsdóms í máli Snædísar. Vísir/Stefán
Íslenska ríkið gæti þurft að greiða heyrnarlausum miskabætur vegna dóms sem féll í héraðsdómi um bætur og endurgreiðslu kostnaðar til fatlaðrar konu sem þurfti að nýta sér túlkaþjónustu. Lögmaður konunnar segir marga í sömu stöðu.



Fréttablaðið greindi frá því í morgun að menntamálaráðherra ætlar ekki mæla með því að máli þar sem ríkið var dæmt til að greiða fatlaðri stúlku miskabætur og útlagðan kostnað við túlkaþjónustu yrði áfrýja.



Páll Rúnar Mikael Kristjánsson, lögmaður Snædísar Ránar Hjartardóttur sem vann málið, segir að þetta þýði að þeir sem eru sömu stöðu eigi kröfu á ríkið.



„Staða Snædísar hvað þessa þjónustu varðar er ekkert jaðartilfelli. Þvert á móti gefur hún góða mynd af þeim sem þurfa þessa þjónustu. Ef þessu verður ekki áfrýjað þá er fordæmisgildi dómsins af þeirri ástæðu mikið og ljóst að þeir sem eru í sambærilegri stöðu njóta sama réttar.



Þannig að þessi dómur hefur víðtækt fordæmisgildi að þínu mati? „Já hann hefur það tvímælalaust. Þeir sem eru í sambærilegri stöðu njóta sama réttar. Það þýðir það að þessir einstaklingar eiga þá líka kröfu á ríkið um miskabætur og það þýðir líka það að þeir sem hafa lagt út fyrir sinni þjónustu úr eigin vasa eiga endurgreiðslukröfu á íslenska ríkið,“ segir hann.

Ráðuneytið hlýtur núna að fara í þá vinna að hafa frumkvæði að því að greiða þessar bætur og endurgreiða það sem ofgreitt var, líkt og hið vandaða stjórnvald á vissulega að gera. Að öðrum kosti þurfa þessir einstaklingar bara að sækja þennan rétt sinn, það ætti ekki að vera flókið,“ segir Páll Rúnar.


Tengdar fréttir

Ráðherrann vill ekki áfrýja í túlkamálinu

Menntamálaráðherra mælir ekki með því að áfrýja máli þar sem ríkið var dæmt til að greiða fatlaðri stúlku miskabætur og útlagðan kostnað við túlkaþjónustu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×