Innlent

Fleiri forskráðir og fleiri heita á

Bjarki Ármannsson skrifar
Frá maraþoninu í fyrra.
Frá maraþoninu í fyrra. Vísir/Daníel
Alls eru 13.003 forskráðir í Reykjavíkurmaraþonið sem fer fram á laugardag í 31. sinn.

Forskráningu á netinu lauk í gær. Í tilkynningu segir að þetta sé níu prósenta fjölgun frá því í fyrra og þó skráningu sé ekki lokið, sé þegar búið að slá þátttökumet í maraþoni, hálfmaraþoni og tíu kílómetra hlaupi.

Sömuleiðis gengur áheitasöfnun talsvert betur en í fyrra. Heildarsöfnun áheita er nú komin yfir 55 milljónir, sem er um tuttugu prósent meira en á sama tíma fyrir ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×