Innlent

Fjörutíu skjálftar mældust við Bárðarbungu

Stefán Árni Pálsson skrifar
vísir/egill
Um 40 skjálftar hafa mælst við Bárðarbungu frá því í gærmorgun. Nokkrir voru milli 4 og 5 af stærð en þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands.

Stærsti varð við norðaustanverða öskjuna klukkan 13:36 í gær og var hann 4,4.

Nokkrir skjálftar hafa mælst í ganginum, allir innan við tvö stig.

Það sást til gossins á vefmyndavélum um tíma í nótt og virðist svipaður gangur í því og verið hefur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×