Innlent

Fjörutíu skjálftar frá miðnætti

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
vísir/auðunn
Rúmlega fjörutíu skjálftar hafa verið staðsettir við Bárðarbungu frá miðnætti og yfir þrjátíu í ganginum. Eru það nokkuð fleiri skjálftar en á sama tíma í gær.

Enginn skjálfti hefur þó náð fimm stigum það sem af er degi. Þrír voru fjögur stig eða stærri, allir við norðanverða öskju Bárðarbungu.  Sá stærsti rétt fyrir klukkan þrjú, 4,7 að stærð.  Þá er gangur í gosinu svipaður og síðustu daga.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×