Innlent

Fjörutíu prósent þingumræðunnar hefur verið um fjárlögin

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Búið er að ræða um fjárlög næsta árs í um 90 klukkustundir.
Búið er að ræða um fjárlög næsta árs í um 90 klukkustundir. Vísir/Ernir
Þrjátíu og tveir þingmenn hafa talað lengur en í klukkustund um fjárlögin samkvæmt gögnum Alþingis. Búið er að ræða um þau í um 90 klukkustundir. Stjórnarandstaðan hefur talað mun meira en stjórnarliðar hafa gert, eða rúmar 64 stundir á móti 23.

Í heildina er búið að tala í tæpar 13 þúsund mínútur á þingi, eða um það bil 216 klukkustundir. Fjárlagaumræðan hefur því tekið um 40 prósent af öllum umræðum í þingsalnum. 

Þeir sem talað hafa mest undir þessum lið eru:

  • Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, Vinstri hreyfingin - grænt framboð, aðalmaður, 296 mínútur
  • Oddný G. Harðardóttir, Samfylkingin, 250 mínútur
  • Lilja Rafney Magnúsdóttir, Vinstri hreyfingin - grænt framboð, 217 mínútur
  • Katrín Júlíusdóttir, Samfylkingin, 199 mínútur
  • Össur Skarphéðinsson, Samfylkingin, 198 mínútur
Á hinum enda listans er hins vegar nær einungis að finna stjórnarliða.

  • Þórunn Egilsdóttir, Framsóknarflokkur, 0 mínútur
  • Eygló Harðardóttir, Framsóknarflokkur, 1 mínútu
  • Sigríður Á. Andersen, Sjálfstæðisflokkur, 3 mínútur
  • Vilhjálmur Bjarnason, Sjálfstæðisflokkur, 4 mínútur
  • Líneik Anna Sævarsdóttir, Framsóknarflokkur, 4 mínútur
Sá tími sem Þórunn Egilsdóttir hefur tjáð sig úr stóli forseta Alþingis er ekki talinn með enda er hún þá ekki að sinna hefðbundnum þingstörfum. 

Silja Dögg Gunnarsdóttir og Jóhanna María Sigmundsdóttir, þingkonur Framsóknar, hafa ekki tekið til máls í umræðunni.

Árni Páll Árnason, þingmaður Samfylkingar, sem talað hefur í 161 mínútu, segir á Facebook-síðu sinni að barátta minnihlutans sé ekki búin, þó að 2. umræða um fjárlögin kunni að vera brátt á enda. 

„Langri og strangri orrustu við ríkisstjórnarflokkana um kjör aldraðra og öryrkja og meiri fjármuni til Landspítalans lýkur í dag, en eingöngu til að hefja þá næstu við lokaumræðuna um fjárlög,“ skrifar hann. „Við erum hvergi nærri hætt.“

Uppfært klukkan 15.49

Langri og strangri orrustu við ríkisstjórnarflokkana um kjör aldraðra og öryrkja og meiri fjármuni til Landspítalans lý...

Posted by Árni Páll on Wednesday, December 16, 2015



Fleiri fréttir

Sjá meira


×