Innlent

Fjórtán þingmenn sagst ætla að hætta

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Áform núverandi þingmanna fyrir næstu kosningar
Áform núverandi þingmanna fyrir næstu kosningar
Þrátt fyrir að enn hafi kjördagur fyrir alþingiskosningarnar ekki verið ákveðinn eru stjórnmálaflokkarnir í óðaönn að undirbúa kosningabaráttu sína.

Flestir hafa stjórnmálaflokkarnir ákveðið hvernig valið verður á lista. Þegar hafa tæplega níutíu manns ákveðið að taka þátt í prófkjöri Pírata á höfuðborgarsvæðinu.

Framkvæmdastjóri Pírata brýnir fyrir stjórnvöldum að ákveða dagsetningu.

„Það er agalegt að vinna í þessum aðstæðum. Við erum búin að ráða kosningastjóra og þessi óvissa hamlar mér í mínum störfum og honum í hans störfum. Þannig að við ítrekum það að við viljum að dagsetning kosninga verði gefin upp sem fyrst,“ segir Sigríður Bylgja Sigurjónsdóttir.

Undir þessa áskorun tekur Guðmundur Steingrímsson, þingmaður Bjartrar framtíðar. „Maður veit bara ekkert um það, hvort það verða yfirleitt kosningar,“ segir hann.

Ljóst er að þó nokkrar mannabreytingar verða á Alþingi.

Samkvæmt samantekt Fréttablaðsins ætla fjórtán þingmenn af 63 ekki að gefa kost á sér á framboðslista fyrir kosningarnar. Það eru Brynhildur Pétursdóttir, Róbert Marshall, Frosti Sigurjónsson, Haraldur Einarsson, Páll Jóhann Pálsson, Sigrún Magnúsdóttir, Vigdís Hauksdóttir, Einar K. Guðfinnsson, Hanna Birna Kristjánsdóttir, Ragnheiður Ríkharðsdóttir, Helgi Hrafn Gunnarsson, Katrín Júlíusdóttir, Kristján L. Möller og Ögmundur Jónasson.

Þó hafa mun fleiri, eða 34, sagt í samtali við Fréttablaðið eða upplýst annars staðar opinberlega að þau muni gefa kost á sér. Aðrir hafa ekki gefið upp afstöðu sína.

Steingrímur J. Sigfússon, þingmaður VG, er sá þingmaður sem lengst hefur setið á Alþingi. Þegar hefur verið gengið frá því að hann muni skipa fyrsta sæti flokksins í Norðausturkjördæmi. Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingarinnar, gefur einnig kost á sér. Össur er næstur Steingrími í starfsaldursröð.

Össur býst við því að kosið verði um hvort þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið, en einnig um hvort halda eigi áfram með nýja stjórnarskrá.

„Það verður líka kosið um heilbrigðismál og sömuleiðis um velferðarmál með áherslu á húsnæðismál ungs fólks og aukinn lífeyri til aldraðra.“

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×