Fótbolti

Fjórtán mörk í síðustu níu leikjum

Dost fagnar á dögunum.
Dost fagnar á dögunum. vísir/getty
Hollendingurinn Bas Dost er heitasti framherjinn í Evrópu um þessar mundir.

Dost er búinn að skora 14 mörk í síðustu 9 leikjum sínum með Wolfsburg. Hann skoraði tvö mörk um helgina er Wolfsburg skellti Werder Bremen, 3-5. Wolfsburg er í öðru sæti þýsku deildarinnar.

Hann er búinn að skora 11 mörk það sem af er árinu og það er aðeisn Lionel Messi sem er búinn að skora meira í ár í stóru deildunum. Messi er búinn að skora 12 mörk.

Þessi 25 ára strákur kom til Wolfsburg í júlí árið 2012 frá Heerenveen. Hann á enn eftir að spila A-landsleik með Hollandi en það gæti breyst mjög fljótlega.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×