Innlent

Fjórtán manns sagt upp hjá Fjarðalaxi

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Frá Patreksfirði
Frá Patreksfirði Vísir/Egill Aðalsteinsson
Fjórtán starfsmönnum sem starfa við vinnslu og pökkun hjá Fjarðalaxi á Patreksfirði verður sagt upp störfum frá og með næstu mánaðamótum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.

Er þetta gert vegna þess að flytja þarf vinnsluna í stærra húsnæði þar sem vinnsluhús félagsins á Patreksfirði mun ekki anna því magni sem fyrirhugað er að slátra frá og með næsta hausti.

Þá skapast óvissa um hvar vinnslan verður staðsett og þarf fyrirtækið því að grípa til uppsagna. Fjarðalax vonast þó til að geta boðið starfsfólkinu ný störf um leið og ljóst verður hvar starfsemin verður, en sjá má tilkynningu fyrirtækisins í heild sinni hér að neðan:

Vegna aukinna umsvifa Fjarðalax á Vestfjörðum mun vinnsluhús félagsins á Patreksfirði ekki anna því magni sem fyrirhugað er að slátra frá og með næsta hausti. Því verður að grípa til nauðsynlegra ráðstafana og flytja vinnsluna í stærra húsnæði. Unnið er að því að tryggja áframhaldandi vinnslu á afurðum fyrirtækisins.

Sökum tímabundinnar óvissu um hvar þessi hluti starfseminnar verður settur niður reynist nauðsynlegt að segja upp 14 starfsmönnum sem nú starfa við vinnslu og pökkun á Patreksfirði frá og með næstu mánaðamótum. Vonast er til að hægt verði að bjóða þeim ný störf um leið og ljóst verður hvar starfsemin verður. Þess er vænst að það skýrist á næstu vikum. 

Starfsemi í kringum laxeldisstöðvar Fjarðalax verður áfram á Patreksfirði, Tálknafirði og Arnarfirði. Í apríl mun Fjarðalax taka í notkun nýtt skip sem notað er við vinnsluna og búið að ráða starfsmenn á það. Samhliða er verið að ganga frá samningum við þriðja aðila um þjónustu á kvíum sem mun hefja starfsemi á Vestfjörðum á næstunni. Það mun auka enn við þann mannskap og skipakost sem starfar við eldi félagsins á svæðinu.

Útlit er fyrir að umfang laxeldis á Vestfjörðum vaxi hröðum skrefum á næstu árum innan vébanda nokkurra laxeldisfyrirtækja á svæðinu. Þessi fyrirséði vöxtur er forsenda þess að framleiðslukostnaður hérlendis verði sambærilegur við það sem samkeppnisþjóðir okkar búa almennt við. Það er skoðun forsvarsmanna Fjarðalax að kostnaðarhagræði verði best og fyrst náð með því að aðilar sameinist um slátrun og vinnslu. Eftir því verður leitað af hálfu Fjarðalax í tengslum við flutning á vinnslu félagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×