Fjórtán hundruð börn skráð í fimleikadeild Gerplu Karen Kjartansdóttir skrifar 24. ágúst 2012 19:45
Fjórtán hundruð börn eru skráð fyrir haustið í fimleikadeild Gerplu. Hætt var að taka börn inn á biðlista eftir Verslunarmannahelgi. Þá var þegar búið að skrá meira en eitt þúsund börn sem dreymir um að æfa fimleika sum þeirra hafa beðið í þrjú ár. Gott gengi Gerplu í fimleikum, vinsældir Íþróttaálfsins og nýafstaðnir Ólympíuleikar eiga sjálfsagt stóran hluta í vaxandi áhuga meðal barna á fimleikum. Þegar félagið tók til starfa í Versölum í Kópavog fyrir sjö árum voru iðkendur 600. Nú eru þeir um 1400 og er húsnæðið fullnýtt frá því að skóla lýkur í Salaskóla og fram til 10- 11 á kvöldin. Þótt formaður Gerplu gleðjist yfir vakningu á íþróttinni segir hann hryggilegt að ekki sé hægt að bregðast við henni, þúsund börn hafi verið komin á biðlista snemma í ágúst. Þá hafi ekki annað verið hægt en að loka fyrir frekari skráningu. Það sé dapurlegt og sárt til þess að vita að sum börn hafi beðið í um þrjú ár án þess að komast að. „Því miður þegar við erum komin með yfir þúsund börn á biðlista þá hryggir það okkur mjög," segir Jón Finnbogason, formaður Gerplu. Hann vonast til þess að Kópavogsbær geti brugðist við þessari þróun. Það eigi ekki að vera forréttindi að fá að æfa fimleika. Nauðsynlegt sé að bregðast við stöðunni og auka aðstöðuna í samræmi við vaxandi áhuga. „Við biðjum foreldra og börn að vera þolinmóð því við munum reyna áfram að vinna að lausn þessa máls," segir Jón. „Við þurfum nauðsynlega að vera með þessa starfsemi á fleiri stöðum og komast þá að í fleiri íþróttahúsum í Kópavogi."
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Marius látinn laus Erlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Fleiri fréttir Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Framtíð moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Sjá meira