Leikjavísir

Fjórir leikir munu bíða þegar Nintendo Switch kemur út - Stiklur

Samúel Karl Ólason skrifar
Leikurinn Breath of the Wild mun koma út sama dag og Switch.
Leikurinn Breath of the Wild mun koma út sama dag og Switch. Vísir/GETTY
Þegar nýja leikjatölvan Nintendo Switch kemur á markað þann 3. mars, verðar fjórir leikir fyrir tölvuna til sölu. Á fyrsta degi verða leikirnir The Legend of Zelda: Breath of the Wild, 1-2-Switch, Skylanders Imaginators og Just Dance 2017 í boði. Á næstu mánuðum eftir útgáfu tölvunnar munu 12 leikir líta dagsins ljós.

Það þýðir að alls eru 16 leikir að nálgast útgáfu.

Þegar Nintendo gaf út tölvuna WiiU í nóvember 2012, var tilkynnt að 51 leikur fyrir tölvuna kæmi út á næstu mánuðum. Þó er mögulegt að Nintendo muni kynna fleiri leiki á næstunni.

Hér að neðan verður farið yfir það sem verður í boði.

Klárir á útgáfudag 1-2-Switch The Legend of Zelda: Breath of the Wild Skylanders Imaginators Just Dance 2017 Gefnir út á árinu Has Been Heroes (March 2017) I am Setsuna (March 2017) (á japönsku) Sonic Mania (Spring 2017) Lego City Undercover (Spring 2017) Arms (spring 2017) Super Bomberman R (March 2017) Snipperclips: Cut it Out, Together! (March 2017) Engin Stikla Mario Kart 8 Deluxe (April 28, 2017) Splatoon 2 (Summer 2017) NBA 2K18 (September 2017) Engin stikla Elder Scrolls V: Skyrim (Fall 2017) Super Mario Odyssey (Holiday 2017)

Tengdar fréttir

Leikirnir sem beðið er eftir

Á árinu sem nú er nýbyrjað er von á fjölda leikja sem margir bíða eftir með eftirvæntingu og óhætt er að segja að árið lofi góðu.

Hlutabréf í Nintendo hafa lækkað um 30%

Frá því að gengi hlutabréfa í japanska leikjaframleiðandanum Nintendo náði hæstu hæðum þann 19. júlí síðastliðinn hafa hlutabréfin lækkað um rúmlega 30 prósent.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×