Golf

Fjórir jafnir fyrir lokahringinn á Humana Challenge

Eric Compton deilir forystunni í Kaliforníu.
Eric Compton deilir forystunni í Kaliforníu. AP/Getty
Það má búast við spennandi lokahring á Humana Challenge mótinu sem hluti er af PGA-mótaröðinni en eftir þrjá hringi á þremur mismunandi völlum í eyðimörkinni í Kaliforníu deila fjórir kylfingar forystunni á 17 höggum undir pari.

Það eru þeir Bill Haas, Michael Putnam, Justin Thomas og Eric Compton en sá síðastnefndi á sér marga aðdáendur á mótaröðinni þar sem hann berst við bestu kylfinga heims þrátt fyrir að hafa farið í tvær hjartaígræðslur á lífsleiðinni.

Þá eru einnig fjórir kylfingar jafnir í fimmta sæti aðeins einu höggi á eftir forystusauðunum en þar má helst nefna Matt Kuchar sem hefur verið í toppbaráttunni alla helgina.

Bæði Phil Michelson og Keegan Bradley hófu keppnistímabil sitt á Humana Challenge um helgina en þeir hafa báðir leikið ágætt golf án þess þó að hafa náð að blanda sér í baráttu efstu manna.

Lokahringurinn fer fram í kvöld og hefst útsending á Golfstöðinni klukkan 20:00.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×