Sport

Fjórir Íslendingar berjast í Belfast um helgina

Pétur Marinó Jónsson skrifar
Laugardaginn 26. apríl munu fjórir íslenskir bardagamenn stíga í búrið í Belfast, Norður-Írlandi. Bardagamennirnir fjórir, Magnús Ingi Ingvarsson, Egill Øydvin Hjördísarson, Birgir Örn Tómasson og Diego Björn Valencia, æfa allir með Keppnisliði Mjölnis.

Magnús Ingi Ingvarsson berst gegn hinum írska Jamie O’Neil í áhugamannabardaga í léttvigt. Þetta verður þriðji MMA bardagi Magnúsar en hann hefur sigrað einn og gert eitt jafntefli. Viðtal við Magnús má sjá hér.

Egill Øydvin Hjördísarson berst við Litháann Julius Ziurauskis í áhugamannabardaga í millivigt. Þetta verður annar MMA bardagi Egils en hann barðist síðast í september þar sem hann sigraði eftir “triangle” hengingu í fyrstu lotu. Viðtal við kappann má sjá hér að ofan.

Birgir Örn Tómasson keppir sinn fyrsta MMA bardaga gegn Ryan Greene í léttvigt. Birgir er einn besti sparkboxari landsins og á að baki bardaga í boxi og Muay Thai. Viðtal við hann kemur á vef MMA Frétta á morgun.

Diego Björn Valencia berst sinn fyrsta atvinnumannabardaga gegn Conor Cooke. Upphaflegi andstæðingur Cooke meiddist en Diego samþykkti að berjast við hann aðeins 10 dögum fyrir settan dag. Diego ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur þar sem Cooke er afar sterkur andstæðingur og verður mikil prófraun fyrir hann í sínum fyrsta atvinnumannabardaga.

Diego er með þrjá áhugamannabardaga að baki, tvo sigra og eitt tap. Eina tapið hans kom eftir að Diego var dæmdur úr leik eftir ólöglegt högg. Eftir að andstæðingur hans lá niðri eftir hausspark fylgdi Diego eftir með höggum í gólfinu en slíkt var ólöglegt í þeirri keppni. Diego er margfaldur Íslandsmeistari í karate og hefur unnið til margra verðlauna á glímumótum hérlendis.

Vísir og MMA fréttir hafa tekið höndum saman í umfjöllun um MMA. Pétur Marinó er ritstjóri MMA frétta og birtir fréttir úr MMA heiminum á Vísi. Ekki gleyma að setja "like" við Facebook síðu þeirra hér.  

MMA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×