Innlent

Fjórhjólaslys í hlíðum Úlfarsfells

Birgir Olgeirsson skrifar
Tveir ferðamenn voru á hjólinu, annar meiddist lítillega.
Tveir ferðamenn voru á hjólinu, annar meiddist lítillega. Vísir/Vilhelm
Rétt fyrir klukkan fjögur í dag barst lögreglu á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um fjórhólaslys í hlíðum Úlfarsfells. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni voru tveir ferðamenn á fjórhjólinu sem rann til í hálku og valt. Annar ferðamaðurinn hlaut minniháttar meiðsl að sögn lögreglu.

Í þriðja tímanum í dag varð umferðaróhapp á Reykjanesbraut við Bústaðarveg. Tvær bifreiðar voru fluttar af vettvangi með krana en ekki er vitað um meiðsl á fólki að svo stöddu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×