Innlent

Fjórhjóladrifnir bílar komast nú í Landmannalaugar

Gissur Sigurðsson skrifar
Vegagerðin hefur opnað fyrir umferð fjórhjóladrifna bíla í Landmannalaugar.
Vegagerðin hefur opnað fyrir umferð fjórhjóladrifna bíla í Landmannalaugar. Vísir/Vilhelm
Vegagerðin er búin að opna leiðirnar inn í Landmannalaugar og Veiðivötn en þær eru þó aðeins færar fjórhjóladrifunum bílum. Þá er búið að opna inn í Kverkfjöll og Dreka og Kjalvegur verður fær á næstu dögum. 

Flestar hálendisleiðir eru þó enn lokaðar vegna fannfergis og bleytu, enda snjómagn á hálendinu víða meira en sést hefur um árabil. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×