Handbolti

Fjórföld ástæða fyrir sigurhring Hauka

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Janus Daði hefur farið mikinn.
Janus Daði hefur farið mikinn. vísir/anton
Haukar geta lokað hringnum í kvöld þegar þeir heimsækja nágranna sína í FH í Kaplakrika í 16. umferð Olís-deildar karla í handbolta. Þetta eru síðustu deildarleikir liðanna fyrir tæplega tveggja mánaða jóla- og HM-frí.

Haukar hafa unnið átta deildarleiki í röð, eða alla leiki sína síðan þeir töpuðu á móti FH á heimavelli 12. október síðastliðinn. Haukarnir hafa unnið öll hin lið deildarinnar á þessum átta vikum sem eru liðnar og níundi sigurinn getur lokað sigurhring Haukanna.

Hafnarfjarðarliðin eru annars einu lið Olís-deildarinnar sem hafa ekki tapað í síðustu fimm umferðum og því tvö af heitustu liðum deildarinnar. FH-ingar hafa náð í 8 af 10 stigum síðan þeir töpuðu á móti Valsmönnum 11. nóvember síðastliðinn. Haukar eru nú tveimur stigum á undan en FH-ingar geta tekið af þeim annað sætið með sigri.

Haukar unnu um síðustu helgi auðveldan tíu marka sigur á Akureyri á Ásvöllum, 29-19. Haukar hafa ekki aðeins unnið átta leiki í röð því liðið hefur unnið þessa átta leiki með samtals 60 mörkum eða 7,5 mörkum að meðaltali í leik.

Adam Baumruk er mikil skytta.vísir/eyþór
Sigurgangan hófst á móti Stjörnunni í Mýrinni 20. október og er nú enn í fullum gangi 56 dögum síðar.

Adam Haukur Baumruk var markahæstur í sigrinum á Akureyringum en hann er einn af fjórum leikmönnum Hauka­liðsins sem hafa skipst á því að vera markahæstir í sigurgöngunni. Allir hafa þeir náð því að vera markahæstir í að minnsta kosti tveimur leikjum í sigurgöngunni.

Það sýnir um leið einn helsta styrk Haukaliðsins sem er breiddin. Fjórir leikmenn hafa skoraði yfir 40 mörk í þessum átta sigurleikjum eða yfir fimm mörk að meðaltali í leik. Adam Haukur (49 mörk) er næstmarkahæstur á eftir Daníel Þór Ingasyni (53 mörk) en hinir tveir eru þeir Guðmundur Árni Ólafsson (43 mörk) og Janus Daði Smárason (42 mörk).

Varnarleikurinn á líka mikinn þátt í þessu en liðið sem fékk á sig 31 mark í fyrstu sjö leikjunum (2 sigrar og 5 töp) hefur aðeins fengið á sig 26 mörk að meðaltali í sigurgöngunni undanfarnar átta vikur.

Leikur FH og Hauka hefst klukkan 19.30. Á sama tíma heimsækir topplið Aftureldingar Gróttu út á Seltjarnarnesi. Mosfellingar verða á toppnum um jólin nái þeir í stig en ef Afturelding tapar og Haukar vinna þá munu Haukarnir sitja á toppi Olís-deildar karla næstu 50 daga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×