Fótbolti

Fjórði sigur Avaldsnes í fyrstu fimm umferðunum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Hólmfríður og Þórunn Helga voru báðar í byrjunarliði Avaldsnes í dag.
Hólmfríður og Þórunn Helga voru báðar í byrjunarliði Avaldsnes í dag. mynd/heimasíða avaldsnes
Hólmfríður Magnúsdóttir og Þórunn Helga Jónsdóttir voru báðar í byrjunarliði Avaldsnes sem vann 0-2 sigur á Trondheims-Örn í norsku 1. deildinni í fótbolta í dag.

Avaldsnes hefur farið vel af stað á tímabilinu en sigurinn í dag var sá fjórði í fyrstu fimm leikjum liðsins. Avaldsnes er í 3. sæti deildarinnar, stigi á eftir toppliði Lilleström.

Hege Hansen og Cecilie Pedersen skoruðu mörk Avaldsnes sem endaði í 2. sæti í deild og bikar í fyrra.

Þórunn Helga lék allan leikinn fyrir Avaldsnes í dag en Hólmfríði var skipt af velli á lokamínútunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×