Körfubolti

Fjórða tap Mitteldeutscher í röð

Anton Ingi Leifsson skrifar
Hörður Axel í landsleik.
Hörður Axel í landsleik. Vísir/Daníel
Hörður Axel Vilhjálmsson skoraði fimmtán stig, tók tvö fráköst og gaf fjórar stoðsendingar í naumu tapi Mitteldeutscher gegn botnliði Crailsheim Merlins á útivelli í þýsku úrvalsdeildinni í körfubolta í gær.

Hörður var þriðji stigahæsti leikmaður Mitteldeutscher, en leikurinn var afar jafn og spennandi allan tímann. Staðan í hálfleik var 38-34 Crailsheim í vil og leiddu þeir 52-46 fyrir lokaleikhlutann.

Leikurinn var fjórði tapleikur Harðars og félaga í röð, en síðustu þrír tapleikir hafa samtals verið með átta stigum og einn þeirra fór í framlengingu.

Mitteldeutscher er í áttunda sæti deildarinnar eftir þrettán leiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×