Fjórða hver króna í hagnað ingvar haraldsson skrifar 7. október 2015 10:00 BBA Legal jók hagnað sinn mest milli ára. fréttablaðið
Ríflega fjórða hver króna sem fjórar af stærstu lögmannsstofum landsins þénuðu í fyrra skilaði sér í hagnað. Rekstrartekjur lögmannsstofanna fjögurra, Lex, Logos, Markarinnar og BBA Legal, námu 4,6 milljörðum en hagnaður ríflega 1,2 milljörðum króna. Sé einnig horft til afkomu Landslaga og Réttar sem ekki gefa upp veltutölur í ársreikningi, högnuðust lögmannsstofurnar sex um 1.483 milljónir króna á síðasta ári en 1.513 milljónir króna árið 2013 svo hagnaður dróst saman um 31 milljón króna milli ára. Nær allur hagnaður lögmannsstofanna árið 2013 var greiddur í arð á síðasta ári en alls námu arðgreiðslur til eigenda lögmannsstofanna sex 1.407 milljónum króna í fyrra. Þegar kemur að veltu er Logos langstærsta lögmannsstofan, en fyrirtækið velti 2,2 milljörðum króna árið 2014 sem er samdráttur um 221 milljón króna milli ára. Hagnaður Logos dróst einnig saman um 102 milljónir króna, en hagnaður fyrirtækisins var 616 milljónir króna í fyrra en 718 milljónir króna í hittifyrra. Næststærst er Lex sem er hálfdrættingur á við Logos þegar kemur að veltu og amlóði þegar kemur að hagnaði. Lögmannsstofan velti 1,2 milljörðum króna í fyrra en hagnaður hennar var 206 milljónir króna sem er smávægileg aukning milli ára. BBA Legal er hástökkvari ársins þegar kemur að hagnaði sem nær tvöfaldaðist milli ára. Hagnaður BBA Legal nam 250 milljónum króna í fyrra en 134 milljónum árið 2013. Þá jukust rekstrartekjur fyrirtækisins um 160 milljónir og voru 685 milljónir. Hagnaður og velta Markar dróst saman um 60 milljónir króna í fyrra, en fyrirtækið velti 500 milljónum króna og hagnaðist um 168 milljónir króna. Landslög högnuðust um 175 milljónir króna í fyrra sem er 25 milljónum króna meira en árið 2013. Þá hagnaðist lögmannsstofan Réttur um 59 milljónir króna í fyrra sem er 8 milljónum minna en árið 2013.
Mest lesið Ritskoðaður bjór fær blessun ÁTVR Viðskipti innlent Guðbjörg orðin pítsudrottning Viðskipti innlent Finnur þægilegu heimatilfinninguna þegar hann lendir í Keflavík Atvinnulíf Bankaráðið sakar bankasýsluna um aðdróttanir Viðskipti innlent Tekur við stöðu forstjóra Securitas Viðskipti innlent Eyjólfur vill halda formennsku áfram Viðskipti innlent Villta vestrið í gjaldtöku bílastæða Neytendur Spánski verður Daisy Viðskipti innlent FÍB vill að Neytendastofa grípi til aðgerða vegna ófremdarástands í bílastæðamálum Neytendur Annað markaðsleyfi í höfn í Bandaríkjunum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eyjólfur vill halda formennsku áfram Tekur við stöðu forstjóra Securitas Bankaráðið sakar bankasýsluna um aðdróttanir Guðbjörg orðin pítsudrottning Ritskoðaður bjór fær blessun ÁTVR Annað markaðsleyfi í höfn í Bandaríkjunum Spánski verður Daisy Lilja leiðir nýja markaðs- og sjálfbærnideild Sýnar Byggingaframkvæmdir óralangt frá settum markmiðum Taka við stjórnendastöðum hjá Advania Benedikt tekur við af Andrési hjá SVÞ Tveir stjórnarmenn og forstjóri lögðu til milljarð Loftleiðir með þrjár þotur í lúxusflugi fyrir ríka fólkið Viðræður vegna kaupa á Lyfju að hefjast Dómari þarf ekki að víkja vegna fjölskyldutengsla í máli feðga Skorti heildarmynd í Landsbankamálinu Innkalla kjúkling vegna gruns um salmonellu Markaðstorg með raforku spretta upp KEA nú stærsti hluthafinn í Norlandair Fjögurra stjörnu hótel opni við Skógarböðin Hákon nýr öryggisstjóri Arion Fyrrverandi forstjóri Bláfugls stýrir nýju sviði hjá Play Hafa tapað milljörðum vegna endurtekinna lokana Segir yfirlýsingu bankaráðsins „auma“ Bankasýslan hafi ekki gert athugasemdir við tilboð í TM Munu skoða að losna strax við TM Þriggja mínútna símtal uppfylli ekki skýran samning Öllu bankaráði Landsbankans skipt út Stefna Eimskip: Tjón Samskipa gæti hlaupið á milljörðum króna Spá því að verðbólga hjaðni Sjá meira