Fjör á fjöllum

Gagnrýni
Fréttablaðið Gagnrýni 03. febrúar 2012 12:00
Liam Neeson sannar ágæti sitt sem hasarhetja á ný í The Grey.
Liam Neeson sannar ágæti sitt sem hasarhetja á ný í The Grey.
Haukur Viðar Alfreðsson skrifar:
Bíó. The Grey. Leikstjórn: Joe Carnahan. Leikarar: Liam Neeson, Frank Grillo, Dermot Mulroney, Dallas Roberts, Joe Anderson, Nonso Anozie, James Badge Dale.

Úlfaveiðimaðurinn Ottway (Liam Neeson) er á barmi sjálfsvígs þegar hann lendir í flugslysi í snævi þöktum fjöllum Alaska. Hann kemst þó lifandi úr brakinu og tekst að bjarga sex öðrum, en enginn veit hvar þeir eru staddir og hungraðir úlfar sitja um sjömenningana. Það er vissulega kaldhæðnislegt að fylgjast með manni í sjálfsvígshugleiðingum berjast fyrir lífi sínu og reynir myndin að segja manni sitthvað um lífið og dauðann.

Joe Carnahan er ágætur leikstjóri og skapar hér margar eftirminnilegar senur. Sjálft flugslysið er frábærlega sviðsett og atriðið þar sem mennirnir hanga yfir þverhnípi á samanhnýttum fatapjötlum er ógleymanlegt. Úlfarnir eru mis-raunverulegir en sleppa fyrir horn. Tónlist er notuð sparlega og kemur það vel út að sleppa henni, eins og gert er í sumum af æsilegri atriðunum.

Líkt og margar aðrar myndir af svipuðum toga reynir The Grey að tvinna saman hrollvekjandi spennu og listræna dramatík. Sem spennumynd virkar hún fullkomlega. Grimmileg veðráttan, gólandi úlfarnir og glæfraleg hengiflug halda áhorfandanum í heljargreipum og Liam Neeson sannar ágæti sitt sem hasarhetja enn á ný.

Dramatíkin er hins vegar klaufaleg á köflum og yfirlýstar dagdraumasenurnar þar sem kona Ottways hvíslar til hans valda flissi frekar en að vekja forvitni.

Niðurstaða: Hörkuspennandi fjallatryllir sem nær þó litlu dramatísku flugi.

Fleiri fréttir - Gagnrýni

Gagnrýni 24. maí. 2012 10:30

Súrrealísk sumargjöf

Stórfín frumraun Tilbury, stappfull af grípandi popplögum og forvitnilegum textum. Tónlist...  

Meira
Gagnrýni 23. maí. 2012 20:00

Innan þægindarammans

Dark Shadows er nokkuð góð skemmtun sem skrifast að stórum hluta á Johnny Depp. Leikstjóri...  

Meira
Gagnrýni 23. maí. 2012 10:00

Gengu af göflunum

Algerlega frábærir tónleikar. Ég get ekki ímyndað mér að nokkur hafi orðið fyrir vonbrigðu...  

Meira
Gagnrýni 21. maí. 2012 10:00

Starað í poppið

Hvað fór úrskeiðis hjá þessum hæfileikaríka grínara? Borat var ósmekkleg frá upphafi til e...  

Meira
Gagnrýni 16. maí. 2012 11:00

Norah prófar eitthvað nýtt

Þokkalegasta plata sem aðdáendur Noruh Jones ættu að vera sáttir við. Danger Mouse býr til...  

Meira
Gagnrýni 11. maí. 2012 15:00

Út um þúfur

Aðdáendur Mel Gibson eiga betra skilið. Það er orðið svo skrambi erfitt að halda upp á han...  

Meira
Gagnrýni 10. maí. 2012 14:30

Endurvinnslukóngurinn

Jack White með eina af plötum ársins. Blunderbuss er lítið meistaraverk; þrettán lög, hver...  

Meira
Gagnrýni 09. maí. 2012 12:30

Barist í blokk

Það er ekki á hverjum degi sem indónesískar hasarmyndir rata í íslensk kvikmyndahús. En ek...  

Meira
Gagnrýni 08. maí. 2012 11:00

Fersk og óvænt plata

Nýjasta hljómsveitin hans Krumma með frábæra plötu. Hún kemur fersk inn í íslenska tónlist...  

Meira
Gagnrýni 03. maí. 2012 11:00

Bubbi í toppformi

Þorpið er, ef mér skjátlast ekki, 26. plata Bubba með nýju efni. Það eru ótrúleg afköst. O...  

Meira
Gagnrýni 02. maí. 2012 11:15

Leikræn og lipur fengitíð

Svar við bréfi Helgu er góð sýning með skýrri persónusköpun. Leikgerðin er mjög spennandi....  

Meira
Gagnrýni 01. maí. 2012 15:00

Árshátíð ofurhetja

The Avengers er alvöru árshátíð. Mikið hlegið og allir í sínu fínasta pússi. Hulk var þó v...  

Meira
Gagnrýni 20. apr. 2012 13:00

Skálkar á skólabekk

Mátulegur skammtur af formúluskopi. Allt gott og blessað. Þessi ágæti grínhasar krefst eng...  

Meira
Gagnrýni 18. apr. 2012 21:00

Rokkaður gospelblús

Blússveit Þóllýjar er skipuð söngkonunni Þollý Rósmunds, gítarleikaranum Magnúsi Axel Hans...  

Meira
Gagnrýni 18. apr. 2012 15:00

Rokk og ról

Fyndin og fjörug brelluveisla. Og hávaðinn er ægilegur. Battleship veit hvað hún vill vera...  

Meira
Gagnrýni 13. apr. 2012 20:00

Fram og aftur morðgátuna

Vel byggður og spennandi krimmi með ótrúlegu fléttumunstri og vel skrifuðum persónum. Nesb...  

Meira
Gagnrýni 13. apr. 2012 12:30

Vessa- og vandræðahúmor

Fortíðardaðrið er töluvert og aðdáendur myndanna geta eflaust skemmt sér sæmilega yfir Ame...  

Meira
Gagnrýni 12. apr. 2012 14:00

Vel útfært og kraftmikið

Muck stimplar sig inn með pottþéttri rokkplötu, lagasmíðarnar eru fínar, flutningur þéttur...  

Meira
Gagnrýni 11. apr. 2012 20:00

Farsaskrímslið snýr aftur

Tveir 11 ára piltar lumbra hvor á öðrum og tennur hljóta skaða af. Foreldrar drengjanna hi...  

Meira
Gagnrýni 11. apr. 2012 09:00

Hress skilnaðarplata frá drottningu poppsins

MDNA er tólfta plata Madonnu og sú fyrsta síðan Hard Candy kom út fyrir fjórum árum. Þetta...  

Meira
Gagnrýni 11. apr. 2012 08:00

Perlan skín enn

Það er gaman að fá þessa perlu aftur í bíó. Hún fjallar um atburði sem áttu sér stað í upp...  

Meira
Gagnrýni 10. apr. 2012 14:00

Falleg sýning um föðurleit

Saga Magneu, tengdamóður höfundarins Vals Freys Einarssonar og móður leikmynda- og búninga...  

Meira
Gagnrýni 10. apr. 2012 10:00

Tilkomumikil hávaðamessa

AMFJ er listamannsnafn Aðalsteins Jörundssonar. Hann hefur vakið athygli undanfarin ár fyr...  

Meira
Gagnrýni 02. apr. 2012 17:00

Björk hittir Áhöfnina á Halastjörnunni

Karl Olgeirs, Jón Rafns og Kristinn Snær djassa upp íslensk popplög úr ólíkum áttum. Eins ...  

Meira
Gagnrýni 29. mar. 2012 14:30

Þetta er ungt og leikur sér

Þessi risastóra mynd er byggð á vinsælli skáldsögu eftir Suzanne Collins og gerist í ótilg...  

Meira
Gagnrýni 27. mar. 2012 12:00

Meðalmennska á Manhattan

Leikararnir halda myndinni á floti. Þá er umhverfið notað á skemmtilegan máta og ætti að k...  

Meira
Tarot
Hugsaðu þér, eða skrifaðu spurningu og dragðu þér spádómsspil
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Lífið - Yfir / Gagnrýni / Fjör á fjöllum