Fjölskyldan í Kaíró: Ég myndi öskra Jóhanna Margrét Gísladóttir skrifar 30. janúar 2011 19:41
Egypsk kona sem býr hér á landi segist óttast um afdrif fjölskyldu sinnar í Kairó. Sjálf myndi hún taka þátt í mótmælunum ef hún væri í landinu. Tala látinna er komin yfir hundrað og mörg þúsund eru særðir. Herþotur sveima yfir Kairó og mótmælendur ráða yfir götunum. Nevin Shalaby kom hingað til lands í ágúst 2009 og býr með íslenskum eiginmanni sínum og tveimur börnum. Hún náði loksins í gær sambandi við fjölskyldu sína í Kaíró. Önnur systir hennar hefur flúið ásamt eiginmanni sínum en yngri bróðir hennar og aldraðir foreldrar eru föst í litlum bæ rétt fyrir utan Kaíró og sæta árásir óeinkennisklæddra lögreglumanna. Þau vita ekki hvernig þau geta sótt sér mat eða hvað þau geta gert. Þau hafa tekið sig saman með nágrönnunum að verja eignir sínar.Segir lögreglumenn kveikja í húsum „Egyptar myndu aldrei gera þessa slæmu hluti. Þeir vilja bara fá rétt sinn. Þeim er illa við Mubarak og vilja að hann fari. Þeir kveikja ekki í húsum eða drepa fólk. Það er lögreglan sem gerir það, sú óeinkennisklædda, ekki sú sem er í lögreglubúningum," segir Nevin. Hún segir Egypta aðeins vilja fá sömu tækifæri og aðrar þjóðir til að mennta sig, sækja sér heilbrigðisþjónustu og byggja upp friðsælt líf. Þjóðin hafi verið bæld niður af Mubarak í þrjátíu ár með innantómum loforðum. Það sé komið nóg af því og nágrannaþjóðir styðji Egypta í baráttunni.„Ég myndi öskra" Navin vill að þjóðin fái tækifæri til að kjósa sér lýðræðislega stjórn í stað einkavina Mubaraks og hún trúir að egypska þjóðin muni uppskera betri tíma úr þessum óeirðum. Ef hún væri í Egyptalandi myndi hún slást í hóp með mótmælendum á Tahrir torgi. „Af öllu hjarta. Ég myndi öskra eins og þeir, vera með þeim, styðja þá. Við erum sterkt fólk og við verðum að ná fram rétti okkar," segir Nevin.
Tengdar fréttir Olíuverð hækkar vegna átakanna í Egyptalandi Tala látinna í Egyptalandi er komin á annað hundrað. Olíuverð hefur rokið upp og óttast er að Súez-skurðurinn muni lokast. 30. janúar 2011 12:15 Hermenn taka þátt í mótmælunum Fjölmennt lið hermanna er nú á götum Kaíró, höfuðborgar Egyptalands, en hermennirnir halda sér alfarið til hlés og láta mótmælendur óáreitta. Það sama má segja um lögreglumenn. Þá berast fréttir um að fjölmargir her- og lögreglumenn hafi slegist í lið með mótmælendum. 30. janúar 2011 14:08 Þjóðarleiðtogar þrýsta á Mubarak Tala látinna í Egyptalandi er komin á annað hundrað síðan að mótmælin hófust á þriðjudaginn samkvæmt Reuters fréttaveitunni. Þúsundir eru særðir. Stjórnvöld halda nú, sjötta daginn í röð, áfram að berjast við mótmælendur, 17 voru skotnir af lögreglu þegar þeir reyndu að ráðast á tvær lögreglustöðvar í borginni Beni Suef sunnan Kairó. 30. janúar 2011 09:43 Mest lesið Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Strunsaði úr viðtali: „Þú ert annaðhvort spillt eða heimsk“ Erlent Marius látinn laus Erlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Innlent Fleiri fréttir Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali Sjá meira
Olíuverð hækkar vegna átakanna í Egyptalandi Tala látinna í Egyptalandi er komin á annað hundrað. Olíuverð hefur rokið upp og óttast er að Súez-skurðurinn muni lokast. 30. janúar 2011 12:15
Hermenn taka þátt í mótmælunum Fjölmennt lið hermanna er nú á götum Kaíró, höfuðborgar Egyptalands, en hermennirnir halda sér alfarið til hlés og láta mótmælendur óáreitta. Það sama má segja um lögreglumenn. Þá berast fréttir um að fjölmargir her- og lögreglumenn hafi slegist í lið með mótmælendum. 30. janúar 2011 14:08
Þjóðarleiðtogar þrýsta á Mubarak Tala látinna í Egyptalandi er komin á annað hundrað síðan að mótmælin hófust á þriðjudaginn samkvæmt Reuters fréttaveitunni. Þúsundir eru særðir. Stjórnvöld halda nú, sjötta daginn í röð, áfram að berjast við mótmælendur, 17 voru skotnir af lögreglu þegar þeir reyndu að ráðast á tvær lögreglustöðvar í borginni Beni Suef sunnan Kairó. 30. janúar 2011 09:43