Lífið

Fjölskyldan fær loks að fara saman til útlanda

Stefán Árni Pálsson skrifar
Örn Danival Kristjánsson er hér til hægri ásamt fulltrúa Úrvals Útsýnar.
Örn Danival Kristjánsson er hér til hægri ásamt fulltrúa Úrvals Útsýnar. vísir/stefán
Sigurvegarinn í ferðaleik Ísland Got Talent er Örn Danival Kristjánsson en hann vann vikuferð fyrir fjóra til Kanarí á fimm stjörnu hótel með Úrval Útsýn.

Það var dóttir Arnar sem hringdi inn í símakosninguna og greiddi atkvæðið sem tryggði fjölskyldunni ferðina en þetta er í fyrsta skipti sem fjölskyldan fer öll saman í ferðlag til útlanda.

Það er því mikil eftirvænting fyrir ferðinni. Jóhanna Ruth bar sigur úr býtum í Ísland Got Talent í ár og vann hún tíu milljónir króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×