Handbolti

Fjölnir sló út Selfyssinga í bikarnum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Kristján Örn Kristjánsson skoraði níu mörk fyrir Fjölni í kvöld.
Kristján Örn Kristjánsson skoraði níu mörk fyrir Fjölni í kvöld. Vísir/Ernir
Fjölnir tryggði sér í kvöld sæti í 8-liða úrslitum Coca-Cola bikarkeppni karla með sigri á Selfossi á heimvelli í kvöld, 29-24. Bæði lið leika í 1. deildinni.

Selfoss er í öðru sæti deildarinnar með sextán stig en Fjölnir því þriðja með fjórtán. Stjarnan er á toppnum með átján en Stjörnumenn eru einnig komnir áfram í 8-liða úrslitin eftir sigur á Akureyri í gær.

Grótta og Afturelding hafa einnig tryggt sér áframhaldandi þátttökurétt en fjórir leikir eru enn eftir í 16-liða úrslitunum.

Fjölnir - Selfoss 29-24 (14-13)

Mörk Fjölnis: Kristján Örn Kristjánsson 9, Brynjar Loftsson 6, Sveinn Þorgeirsson 4, Sveinn Jóhannsson 4, Aðalsteinn Örn Aðalsteinsson 3, Björgvin Páll Rúnarsson 2, Breki Dagsson 1.

Mörk Selfoss: Andri Már Sveinsson 8, Elvar Örn Jónsson 7, Teitur Örn Einarsson 2, Eyvindur Hrannar Gunnarsson 2, Árni Geir Hilmarsson 1, Árni Guðmundsson 1, Egidijus Mikalonis 1, Rúnar Hjálmarsson 1, Alexander Már Egan 1.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×