Sport

Fjölni Þorgeirs langaði að kyssa Berg

Telma Tómasson skrifar
Vel fór á með þeim félögum Fjölni og Bergi eftir keppni í gær.
Vel fór á með þeim félögum Fjölni og Bergi eftir keppni í gær. Stöð 2 Sport
Bergur Jónsson á hinni mögnuðu Kötlu frá Ketilsstöðum átti frábæra sýningu í forkeppni í fjórgangi í Meistaradeild Cintamani í hestaíþróttum, sem fram fór í gærkvöldi, en þurfti síðan að eftirláta Elinu Holst efsta sætið í A-úrslitum.

Það varð Bergi dýrkeypt að meirihluti knapa ákvað að úrslitin yrði riðin upp á vinstri hönd, en Katla er mun sterkari upp á hægri, á ögn í erfiðleikum með vinstra stökk og fetið er einnig lakara, að sögn Bergs.

Bergur lét þó alls ekki taka sig í bólinu með þetta, landaði silfrinu með flotta einkunn 7.60 í A-úrslitum og var verulega sáttur. „Mig langar að kyssa þig,“ sagði Fjölnir Þorgeirsson, en hann varð fyrir miklum hughrifum eftir sýningu Bergs og Kötlu í forkeppninni og sjá má viðtal Fjölnis við Berg í myndskeiðinu sem fylgir fréttinni.

Elin Holst sem fór með sigur af hólmi, er starfsmaður hjá Gangmyllunni, fyrirtæki Bergs og Olil Amble, en Elin og Bergur keppa bæði undir merkjum þess. Þriðji liðsmaður Gangmyllunar, Freyja Amble Gísladóttir, á hryssunni Áflastjörnu frá Syðri – Gegnishólum, komst einnig í A-úrslit, stóð liðið því efst að stigum eftir þessa fyrstu keppni í mótaröðinni og hampaði hinum eftirsótta liðaskildi eftir fjórganginn.

Sjá má sýningu Bergs Jónssonar á Kötlu frá Ketilsstöðum í meðfylgjandi myndskeiði en keppnin var í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

Niðurstöður A-úrslita voru eftirfarandi:

1. Elin Holst - Frami frá Ketilsstöðum - Gangmyllan - 8.07

2. Bergur Jónsson - Katla frá Ketilsstöðum - Gangmyllan - 7.60

3. Jakob S. Sigurðsson - Júlía frá Hamarsey - Top Reiter - 7.33

4. Guðm. F. Björgvinsson - Straumur frá Feti - Hestvit/Árbakki/Svarthöfði - 7.33

5. Freyja Amble Gíslad. - Álfastjárna frá S-Gegnishólum - Gangmyllan - 7.30

6. Sigurður V. Matthíass. - Arður frá Efri-Þverá - Ganghestar/Margrétarhof - 7.10

7. Árni Björn Pálsson - Flaumur frá Sólvangi - Top Reiter - 6.77




Fleiri fréttir

Sjá meira


×