Erlent

Fjölmiðlar birta myndband sem talið er að sýni morðið á Kim Jong-nam

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Frá vettvangi morðsins á flugvellinum í Kuala Lumpur.
Frá vettvangi morðsins á flugvellinum í Kuala Lumpur. vísir/epa
Japönsk sjónvarpsstöð hefur birt myndband sem talið er að sýni morðið á Kim Jong-nam, hálfbróður Kim Jong-un, einræðisherra Norður-Kóreu. Tvær konur réðust á Jong-nam á alþjóðaflugvellinum í Kuala Lumpur í Malasíu á mánudaginn í síðustu viku en talið er að þær hafi spreyjað eiturefnum í andlitið á honum.

Jong-nam, sem bjó lengst af erlendis, lést í sjúkrabíl á leiðinni á spítala en grunur leikur á að morðið sé runnið undan rifjum yfirvalda í Norður-Kóreu. Fjórir eru í haldi vegna morðsins, indónesísk kona, malasískur karlmaður, víetnömsk kona og norður-kóreskur karlmaður. Greint var frá því fyrir helgi að indónesíska konan hélt að hún væri að taka þátt í sjónvarpshrekk.

Myndbandið, sem sjá má hér að neðan, sýnir tvö sjónarhorn á árásinni sem leiddi til dauða Jong-nam. Það er úr eftirlitsmyndavélum á flugvellinum og á því sést hvar kona ræðst aftan að manni sem talið er að sé Jong-nam. Konan virðist setja hendurnar yfir andlitið á honum og labba síðan í burtu auk þess sem önnur kona sést fara af vettvangi.

Þá sést líka hvar Jong-nam, klæddur í bláa skyrtu og gráan jakka, skjögrar um flugvöllinn þar sem hann reynir að þurrka sér í framan og biðja um aðstoð frá starfsfólki flugvallarins.

Hér að neðan má sjá myndbandið eins og það er birt á vef breska dagblaðsins The Guardian en rétt er að vara viðkvæma við því.


Tengdar fréttir

Uppreisnargjarni glaumgosinn Kim Jong-nam

Kim Jong-nam var vafalaust ætlað leiðtogahlutverki í Norður-Kóreu. Hann var hins vegar ráðinn af dögum af útsendurum Norður-Kóreustjórnar fyrr í vikunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×