Lífið

Fjölmenni á ATP

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
Fjögur þúsund gestir voru á hátíðinni og þar af um 1.700 erlendir ferðamenn.
Fjögur þúsund gestir voru á hátíðinni og þar af um 1.700 erlendir ferðamenn. vísir/andri
Um fjögur þúsund manns mættu á tónlistarhátíðina ATP í Reykjanesbæ síðastliðna helgi. Þar af voru um 1.700 erlendir ferðamenn fyrir utan listamennina og fjölmiðla.

Tómas Young, skipuleggjandi hátíðarinnar, segir íslensku tónlistarflóruna hafa verið á svæðinu ásamt fjölmörgum fjölmiðlamönnum. Má þar nefna Björk Guðmundsdóttur, Einar Örn Benediktsson, Óli Palli á Rás 2 og Hrefna Rósa Sætran stjörnukokkur.

Frægasti gestur hátíðarinnar var þó líklega Helena Christensen, fyrrverandi súpermódel og eiginkona söngvarans í Interpol, Paul Banks. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×