Erlent

Fjölmenn mótmæli í Helsinki

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Um 15.000 mættu á mótmælin.
Um 15.000 mættu á mótmælin. Vísir/AFP
Þúsundir komu saman í Helsinki í gær til að mótmæla ummælum finnska stjórnarþingmannsins Olli Immonen þar sem hann hvatti Finna til að standa saman til að vernda hina einu sönnu finnsku þjóð.

„Mig dreymir um sterka og hugrakka þjóð sem mun sigra þessa martröð sem kallast fjölmenningarstefna. Þessi ófríða loftbóla sem óvinir okkar búa í mun brátt brotna í þúsund mola. Ég hef mikla trú á okkar kröftugu baráttumönnum. Við munum berjast til loka fyrir föðurlandið og hina einu sönnu finnsku þjóð.“ Þetta skrifaði Immonen á Facebook-síðu sína um helgina en hann er þingmaður Sannra Finna sem er einn af þremur flokkum sem mynda ríkisstjórn Finnlands.

„Við erum vön kynþáttafordómum en við verðum að berjast gegn þessu. Við höfum verið þögul í of langan tíma en nú er kominn tími til að segja það upphátt: Þetta er ekki í lagi“ sagði Ozan Yanar, þingmaður Græningja, en hann er fæddur í Tyrklandi en talið er að um 15.000 manns hafi verið viðstaddir mótmælin.

Sannir Finnar er næststærsti flokkurinn á finnska þinginu og hefur það á stefnuskrá sinni að herða innflytjendalögin. Flokkurinn vill þó ekki kenna sig við öfgasinnaða hægri flokka í Evrópu. Formaður flokksins, utanríkisráðherrann Timo Soini taldi að ummæli Immonen myndu skaða flokkinn.

Ráðherrar ósáttir með ummælin

Margir sáu tengsl á milli tímasetningar ummæla Immonen og þess að 22. júlí sl. voru fjögur ár frá fjöldamorðum Anders Behring Breivik í Útey í Noregi. Immonen neitaði að einhver tengsl lægu þarna á milli.



Juha Sipila, forsætisráðherra Finnlands, sagði að ummæli Immonen væri óásættanleg: „Finnland hefur alltaf verið alþjóðlegt land, þeir sem hafa flutt hingað til lands hafa ávallt auðgað menningar- og viðskiptalíf okkar.“

Juhana Aunesluoma, rannsóknastjóri Evrópufræða við Háskólann í Helsinki, telur að ummæli Immonen sýni að klofningur sé að myndast innan flokks Sannra Finna eftir að hann myndaði ríkisstjórn með mið-hægri flokkum og hafi þurft að glíma við málefni á borð við ástandið í Griklandi.

„Það er ákveðinn herskár armur innan flokksins og það er krefjandi verkefni fyrir stjórn flokksins að stilla stefnu sína af.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×