Innlent

Fjöldi mála þar sem brotið er á starfsfólki í veitingageiranum

Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar
Óskar Hafnfjörð Gunnarsson.
Óskar Hafnfjörð Gunnarsson. VÍSIR/SKJÁSKOT
Töluvert er orðið um að aðilar í veitingarekstri nýti sér erlendar starfsmannaleigur til að verða sér úti um starfsfólk, en það hefur ekki þekkst í veitingageiranum hér á landi hingað til. Aldrei hafa verið jafn mörg mál á borði Matvæla og veitingafélags Íslands þar sem grunur er um að brotið sé á starfsfólki.

Í fréttum okkar í gær var greint frá því að eftirspurn eftir lærðum mat- og framreiðslumönnum hér á landi sé mun meiri en framboðið ræður við. Þessi þróun hefur orðið til þess að aðilar í veitingarekstri leita út fyrir landsteinana að vinnafli í auknum mæli.

„Við erum að sjá í auknum mæli starfsmannaleigur koma inn í veitingahúsin og gististaðina, sem við höfum aldrei séð áður,“ segir Óskar Hafnfjörð Gunnarsson, eftirlitsfulltrúi MATVÍS. 

Vinnustaðaeftirlit í veitingageiranum hefur undanfarna mánuði verið stórhert að frumkvæði ASÍ, en Óskar segir að aldrei hafi jafn mörg mál þar sem grunur er á að brotið sé á réttindum starfsfólks ratað inn á borð til MATVÍS.

„Það er gríðarleg aukning, gríðarleg. Í sumar hefur verið bara vitlaust að gera,“ segir hann.

Má segja að það hafi orðið algjör sprenging í þessum málum?

„Gjörsamlega. Við sjáum ekki fram úr þessu eins og er, það er sífellt að bætast í. Enda voru ráðnir 25 nýir eftirlitsfulltrúar sem eru út á örkinni í hverri einustu viku um allt land.“

Óskar segir nokkur nýleg dæmi um að erlendir einstaklingar eða hópar komi til lands á fölskum forsendum, búi við hrörlegan húsakost eða séu látnir vinna langar vaktir dögum saman. Þá sé nokkuð mikið um að starfsmenn sem vinni fulla vinnu séu skráðir sem starfsnemar. 

„Yfirleitt er það bara upp á fæði og húsnæði og fólk fær þá engin laun. Þá er engin kennitala skráð og fólk ekki tryggt ef eitthvað kemur upp á. Þetta er alveg gríðarlega alvarlegt mál enda erum við að skoða þetta gaumgæfilega. Þetta er í raun að taka við, þetta eru nýju sjálfboðaliðarnir,“ segir hann. 

Málin séu þó oft erfið við að eiga.

„Oftar en ekki er fólk bara hrætt við að missa vinnuna og lífsviðurværi sitt.“ 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×