Erlent

Fjöldamorð sögð eiga sér stað í Aleppo

Samúel Karl Ólason skrifar
Þúsundir hafa flúið undan sókn stjórnarhersins.
Þúsundir hafa flúið undan sókn stjórnarhersins. Vísir/AFP
Fregnir hafa borist af umfangsmiklum fjöldamorðum á almennum borgurum í Aleppo í Sýrlandi. Varnir uppreisnar- og vígamanna í austurhluta borgarinnar hafa fallið saman á síðustu klukkustundum. TASS fréttaveitan, sem er í eigu rússneska ríkisins, segir allan austurhluta borgarinnar nú í haldi stjórnarhers Bashar al-Assad og bandamanna hans. Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, hefur biðlað til stjórnarhersins að verja almenna borgara. Hann tekur þó fram að SÞ hafi ekki staðfest fregnirnar.

Samkvæmt Syrian Observatory for Human Rights hafa tugir verið teknir af lífi. Þar á meðal eru almennir borgarar, uppreisnar- og vígamenn og fjölskyldumeðlimir þeirra.

Jan Egeland, erindreki Sameinuðu þjóðanna, sagði fyrr í kvöld að ríkisstjórn Sýrlands og bandamenn hennar í Rússlandi bæru ábyrgð á öllum ódæðum sem stjórnarherinn og bandamenn þeirra fremja í borginni.

Borginni hefur í raun verið skipt upp í tvo hluta í fjögur ár. Stjórnarherinn hefur stjórnað vesturhluta hennar og uppreisnarmenn austurhlutanum. Stjórnarhernum tókst þó að brjótast í gegnum víglínurnar með hjálp sjálfboðaliða frá Íran og öðrum löndum og loftárásum Rússa.

Í vesturhluta borgarinnar, sem hefur ávalt verið undir stjórn stjórnvalda frá því að styrjöldin hófst í Sýrlandi, fara íbúar fagnandi um götur Aleppo. Þau fagna því að nú líti út fyrir að átökunum í borginni sé að ljúka.

Íbúar í austurhluta borgarinnar hafa hins vegar sent frá sér örvæntingarfull skilaboð í dag. Þau hafa kallað eftir því að alþjóðasamfélagið komi þeim til bjargar og lýst gífurlegum loftárásum og stórskotaliðsárásum sem hafa verið gerðar á borgina. Guardian segir frá því að loftárásirnar í dag (mánudag) hafi verið með þeim umfangsmestu á árinu.

Einn hjúkrunarfræðingur sem Guardian ræddi við sagði föður sinn og bróður hafa dáið í stórskotaliðsárásum með nokkurra klukkustunda millibili í dag. Hún sagðist ekki geta flúið þar sem stjórnarliðar líti á hana sem hryðjuverkamann fyrir að hafa sinnt störfum sínum á yfirráðasvæði uppreisnarmanna.

Í frétt Guardian segir að margir íbúar Aleppo sem blaðamenn hafi rætt við á undanförnum mánuðum hafi ekki svarað skilaboðum til þeirra í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×