Menning

Fjölbragðasýning hjá Hymnodiu í Dalabúð

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Hymnodia ætlar að flytja þjóðlög frá öllum heimshornum, svo sem skoska drykkjuvísu, mexíkóskan baráttusöng og finnskan polka.
Hymnodia ætlar að flytja þjóðlög frá öllum heimshornum, svo sem skoska drykkjuvísu, mexíkóskan baráttusöng og finnskan polka. Mynd/úr einkasafni
„Okkar uppátækjum eru engin takmörk sett,“ segir Eyþór Ingi Jónsson, kórstjóri Kammerkórsins Hymnodiu, glaðlega og vísar þar til þeirrar dagskrár sem kórinn mun flytja í Dalabúð í Búðardal annað kvöld klukkan 20. Hann kallar það fjölbragðasýningu og hlakkar til að heimsækja æskuslóðir sínar í Dölunum með hana í farteskinu.



Kórinn syngur nefnilega og spilar á alls kyns skrítin og skemmtileg hljóðfæri og hefur uppi glens og grín, leikræn tilþrif og jafnvel dans, að sögn Eyþórs.

„Brjálaði barítóninn, drynjandi geðlæknirinn, fljúgandi Hollendingurinn, sænski grunnskólakennarinn, lagvissi lögfræðingurinn, tölvuóði trompetleikarinn og margir fleiri koma fram,“ lýsir hann.

Meðal hljóðfæra sem kórinn notar er gömul og beygluð bárujárnsplata, tekin af gömlum útihúsum í Eyjafjarðarsveit.

Einnig verður þar hertrompet sem fannst á götumarkaði í Frakklandi, strákústur Sveins kirkjuvarðar í Akureyrarkirkju, blómavasar og vínflöskur, þurrkuð ávaxtahýði frá Tyrklandi, sauðaleggjaflautur og græjutaska kórstjórans.

Eyþór segir tónlistina líka afar fjölbreytta.

„Þetta eru þjóðlög frá öllum heimshornum eins og skosk drykkjuvísa, mexíkóskur baráttusöngur, madrígal um kakkalakka, sænskur dansleikur, finnskur polki, enskt ástarljóð, rússneskt vögguljóð, kvöldsöngur fiska og margt fleira.“

Kórinn flutti þessa efnisskrá á níu tónleikum á Norðausturlandi í október og nóvember 2013 við mikið lof gesta að sögn Eyþórs.

Eins og fyrr segir hefjast tónleikarnir í Dalabúð klukkan 20. Aðgangseyrir er 2.000 krónur.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×