Bíó og sjónvarp

Fjögurra mínútna innsýn í baráttu ofurhetjanna

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Ofurmanninum er heitt í hamsi í nýju stiklunni.
Ofurmanninum er heitt í hamsi í nýju stiklunni. vísir/skjáskot
Warner Bros. samsteypan gaf öllum aðdáendum DC-myndasagnanna innsýn í kvikmyndina Batman v. Superman: Dawn of Justice á Comic Con-hátíðinni í dag en hún fer nú fram í San Diego.

Samsteypan sendi frá sér nýja, fjögurra mínútna langa stiklu úr myndinni þar sem öllum helstu stórlöxunum bregður fyrir; svo sem Ofumanninum, Leðublökumanninum, Wonder Woman, Lex Luthor ásamt ótal öðrum.

Þá reifar Bruce Wayne einnig ítarlega hvers vegna hann ber svo mikinn kala til Ofurmennisins en þeir munu takast á í kvikmyndinni sem leikstýrt verður af Zack Snyder.

Batman v. Superman er væntanleg í kvikmyndahús í mars á næsta ári en nýju stikluna má sjá hér að neðan. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×