Innlent

Fjögurra bíla árekstur á Hringbraut

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Sumir bílanna voru aðeins skemmdir en um aftanákeyrslu virðist hafa verið að ræða og fylgdu tveir bílar í kjölfarið.
Sumir bílanna voru aðeins skemmdir en um aftanákeyrslu virðist hafa verið að ræða og fylgdu tveir bílar í kjölfarið. Vísir/Pjetur
Fjögurra bíla árekstur varð á ljósunum gatnamótum Hringbrautar og Vatnsmýrarvegar rétt um korter í níu í morgun. Sumir bílanna voru aðeins skemmdir en um aftanákeyrslu virðist hafa verið að ræða og fylgdu tveir bílar í kjölfarið.

Fulltrúar frá Árekstur.is voru mættir á vettvang skömmu síðar og leit ekki út fyrir að alvarleg meiðsl hefðu orðið á fólki. Örlitlar tafir urðu á umferð í austurátt vegna þessa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×