Erlent

Fjögurra ára stúlka lést eftir að hafa fallið út um glugga

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Fjölmargir hafa í dag lagt rósir og kerti fyrir framan heimili stúlkunnar.
Fjölmargir hafa í dag lagt rósir og kerti fyrir framan heimili stúlkunnar. vísir/afp
Fjögurra ára stúlka lést er hún féll út um glugga af annarri hæð íbúðarhúss í Kaupmannahöfn í gær. Móðir hennar hafði skilið hana eftir eina í skamma stund síðla kvölds í gær til að sinna erindum, að því er fram kemur í frétt Berlingske Tidende.

Lögreglu barst tilkynning um slysið um klukkan 23.30 í gær. Lögreglu- og sjúkraflutningamenn voru sendir á vettvang en var stúlkan úrskurðuð látin á staðnum. Málið er rannsakað sem slys.

Fjölmargir hafa í dag lagt rósir og kerti fyrir framan heimili stúlkunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×