Fjögurra ára fangelsisdómur vegna nauðgunar staðfestur í Hæstarétti Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 28. apríl 2016 15:48 Hæstiréttur staðfesti dóm héraðsdóms sem féll í október í fyrra. Vísir/GVA
Hæstiréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur frá því í október í fyrra yfir Magnúsi Óskarssyni en hann var þá dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir nauðgun sem átti sér stað í febrúar 2014. Var maðurinn ákærður fyrir að hafa káfað á brjóstum og kynfærum konu auk þess sem hann átti að hafa neytt hana til að hafa við sig munnmök og kynmök. Átti hann meðal annars að hafa náð því fram „með því að beita hana ofbeldi og hótunum með því að grípa um annan handlegg hennar og þvinga hana niður á gólf og halda henni í tökum í liggjandi líkams-stöðu, meðal annars með því að þrýsta á öxl hennar og grípa með annarri hendi fyrir munn hennar og skipa henni að hafa hljótt [...]“, eins og sagði í ákæru. Maðurinn neitaði sök í málinu en í niðurstöðu héraðsdóms frá því í fyrra kemur fram að konan hafi verið mjög ölvuð umrædda nótt og muni ekki vel eftir öllu því sem gerðist en dómurinn metur framburð hennar trúverðugan. Því metur dómurinn það sem svo að maðurinn hafi nýtt sér ölvunarástand konunnar sem gat ekki spornað við kynferðisbrotum mannsins gegn sér, en dómurinn vísar meðal annars í áverka sem konan hafði, framburð vitna sem kölluð voru fyrir dóminn og skýrslu sálfræðings í niðurstöðu sinni. „Ákærði hefur hér í dómi verið sakfelldur fyrir tvö kynferðisbrot gagnvart brotaþola. Beitti ákærði brotaþola líkamlegu ofbeldi og nýtti sér jafnframt ölvunarástand hennar. Brotin ollu brotaþola mikilli sálrænni vanlíðan. Á ákærði sér engar málsbætur. Með hliðsjón af því sæti ákærði fangelsi í 4 ár. Gæsluvarðhaldsvist ákærða frá 6. til 16. apríl 2014 kemur til frádráttar refsingu.“ Eins og áður segir hefur Hæstiréttur nú staðfest þann dóm.
Mest lesið Starfsmaður Base Parking á 170 á bíl viðskiptavinar Innlent Ákærður fyrir leynilega nektarmynd í Nauthólsvík Innlent Lokuðu þorpi í leit að svörum um hvarf tveggja ára drengs Erlent Próftökubann og refsingar fyrir svindlara Innlent Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Innlent Vill að Færeyjar fái nýjan flugvöll Erlent „Þetta er dagurinn til að skella sér á skíði“ Innlent Hviður allt að 35 metrar á sekúndu og hætt við sandfoki Innlent Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Innlent Umfangsmikið verkefni að hreinsa til eftir slysið Erlent Fleiri fréttir „Reynum allt til að missa þetta ekki í sömu stærð“ Skíðin fundust óskemmd í umferðinni Starfsmaður Base Parking á 170 á bíl viðskiptavinar Vill meiri og betri löggæslu í Mýrdalshreppi Mikil aðsókn í neyðarskýli Próftökubann og refsingar fyrir svindlara Ákærður fyrir leynilega nektarmynd í Nauthólsvík Hádegisfréttir Bylgjunnar Hviður allt að 35 metrar á sekúndu og hætt við sandfoki „Þetta er dagurinn til að skella sér á skíði“ Ógnaði dyraverði skemmtistaðar með hníf Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Vélsleðamaður lenti í snjóflóði Kvöldfréttir Stöðvar 2 Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Aðstoða göngumann á Móskarðshnjúkum Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Ísland sé í torfkofanum í meðferð alvarlegra atvika Ný og glæsileg skólaþyrping byggð á Hellu Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Hádegisfréttir Bylgjunnar Svipar til gamalla óupplýstra rána Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Sjá meira