Innlent

Fjögur og hálft ár í fangelsi fyrir nauðgun í Hrísey

Birgir Olgeirsson skrifar
Brot mannsins áttu sér stað á tjaldstæðinu í Hrísey.
Brot mannsins áttu sér stað á tjaldstæðinu í Hrísey. vísir/friðrik
Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt Eirík Fannar Traustason í fangelsi í fjögur og hálft ár fyrir nauðgun og barnaverndarlagabrot.

Hann var ákærður fyrir að hafa aðfaranótt laugardagsins 25. júlí í fyrra, á tjaldsvæði í Hrísey, farið inn í tjald þar sem sautján ára stúlka lá, gripið um munn hennar, haldið henni niðri og slegið hana hnefahöggi hægra megin í andlit. Því næst sneri Eiríkur stúlkunni á magann, ýtti höfði hennar niður í svefnpokann og hótaði ítrekað að drepa hafa ef hún ekki þegði.

Sló hann hana því næst ítrekað í höfuðið og girti niður um hana og nauðgaði henni. Hótaði hann henni síðan öllu illu ef hún liti upp og fór svo út úr tjaldinu.

Eiríkur var yfirheyrður tvívegis af lögreglu vegna málsins þar sem hann neitaði sakarefninu. Fyrir dómi játaði hann hins vegar sakargiftum og samþykkti jafnframt bótaskyldu gagnvart stúlkunni.

Hann lýsti því fyrir dómi að hann hefði hafið rekstur á veitingastað í Hrísey í janúarmánuði 2015. Föstudaginn 24. júlí var hann einn að störfum á veitingastaðnum en stúlkan, sem var ferðamaður hér á landi, fór á umræddan veitingastað og dvaldi þar í eina og hálfa klukkustund. Þar fékk hann vitneskju um að hún væri einsömul og ætlaði að gista á tjaldstæðinu.

Hann sagðist hafa neytt áfengis og kókaíns umrætt kvöld og farið í „blackout“ og sagðist ekki muna eftir að hafa farið á tjaldstæðið eða hafa átt samskipti við stúlkuna umrædda nótt, en áréttaði að hann vefengdi ekki, í ljósi DNA-rannsóknar, verknaðarlýsingu ákærunnar.

Ásamt fjögurra og hálfs árs fangelsisvist var Eiríkur dæmdur til að greiða föður stúlkunnar, fyrir hönd dóttur hans, 1,6 milljónir króna í miska- og skaðabætur. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×