Golf

Fjögur ný mót og verðlaunafé aldrei meira

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ólafía Þórunn fær tækifæri til að keppa um háar fjárhæðir á næsta ári.
Ólafía Þórunn fær tækifæri til að keppa um háar fjárhæðir á næsta ári. mynd/LET/tristan jones
35 mót verða á dagskrá bandarísku LPGA-mótaraðarinnar í golfi á næsta ári en þau hafa aldrei verið fleiri. Mótunum fjölgar um fjögur á milli ára.

Þá hefur verðlaunafé aldrei verið meira. Samtals verða greiddar út 67,35 milljónir Bandaríkjadala á næsta keppnistímabili (jafnvirði 7,4 milljarða króna) og er um 4,35 milljóna dollara aukningu að ræða.

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir vann sér inn um helgina keppnisrétt á LPGA-mótaröðinni í golfi með því að hafna í öðru sæti á lokaúrtökumótinu sem fór fram á Daytona Beach í Flórída.





Sjá einnig: Ólafía Þórunn kom út í mínus

Fyrir ári síðan vann Ólafía Þórunn sér inn þátttökurétt á Evrópumótaröðinni í golfi. Hún tók þátt í níu mótum á síðasta tímabili og varð í 96. sæti peningalistans, sem dugði ekki til að endurnýja keppnisrétt sinn fyrir næsta ár.

Það kemur þó ekki að sök þar sem að hún hefur nú aðgang að stærstu mótaröð í heimi, þeirri bandarísku.

Mikill munur á tekjum

Eins og Karen Sævarsdóttir benti á í samtali við Vísi fyrr í dag er talsverður munur á LPGA-mótaröðinni og þeirri evrópsku.

Sjá einnig: Karen: Mikill munur á Evrópumótaröðinni og LPGA

Sem dæmi má nefna að langtekjuhæsti kylfingurinn á Evrópumótaröðinni, hin bandaríska Beth Allen, vann sér inn 311 þúsund evrur (jafnvirði 37 milljóna króna) á nýliðnu tímabili.

Þrátt fyrir að Allen hafi verið nánast tvöfalt tekjuhætti en næsti kylfingur á eftir henni voru 58 kylfingar á LPGA-mótaröðinni tekjuhærri en Allen.

Alls voru fimmtán kylfingar á LPGA-mótaröðinni með meira en eina milljón Bandaríkjadala í tekjur á síðasta tímabili og sú tekjuhæsta, Ariya Jutanugarn frá Tælandi, fékk rúma 2,5 milljónir dollara í sinn hlut (jafnvirði 281 milljóna króna) eða rúmlega sjöfalt meira en Allen fékk á Evrópumótaröðinni.

Beth Allen vann Fatima Bint Mubarak-mótið í Abú Dabí í síðasta mánuði en Ólafía Þórunn var þar í forystu fyrstu tvo keppnisdagana.Vísir/Getty
Bestu kylfingarnir á LPGA

Það sést líka greinilega á heimslistanum að sterkustu keppendur heims eru á LPGA-mótaröðinni. Allen til að mynda í 63. sæti heimslistans í golfi þrátt fyrir yfirburðaárangur á Evrópumótaröðinni.

Allen keppti einnig á úrtökumótinu um helgina, með Ólafíu Þórunni, og hafnaði í 6.-7. sæti. Hún mun því keppa á bandarísku mótaröðinni á næsta keppnistímabili.

Sjá einnig: Stelpan sem vann Ólafíu var að vinna í annað sinn | Sjáðu sigurpúttið

Nýtt tímabil á LPGA-mótaröðinni hefst í lok janúar á Pure Silk-mótinu á Bahamaeyjum. Afar líklegt verður að teljast að Ólafía Þórunn fái þar keppnisrétt þó svo að það hafi ekki enn verið staðfest.

Verðlaunafé á því móti verður 1,4 milljónir Bandaríkjadala en til að fá peningaverðlaun á mótinu þarf að vera í hópi þeirra 80 kylfinga sem komast í gegnum niðurskurðinn. Alls tóku 108 kylfingar þátt í mótinu í fyrra.


Tengdar fréttir

LPGA-tímabilið hjá Ólafíu hefst á Bahamaeyjum

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, kylfingur úr GR, tryggði sér þátttökurétt á LPGA-mótaröðinni í golfi, sterkustu atvinnumannamótaröð kvenna í dag fyrst allra íslenskra kvenna.

Ólafía Þórunn kom út í mínus

Þó svo Ólafía Þórunn Kristinsdóttir hafi endað í öðru sæti á lokaúrtökumótinu fyrir LPGA-mótaröðina í gær, og fengið hálfa milljón króna í verðlaunafé, kemur hún út í mínus eftir þátttöku sína.

Karen: Mikill munur á Evrópumótaröðinni og LPGA

"Þetta er rosalegur árangur og ég er ekki hissa á því að hún skildi fara alla leið,“ segir Karen Sævarsdóttir golfsérfræðingur um Ólafíu Þórunni Kristinsdóttur sem endurskrifaði íslenska golfsögu í gær.

Maður þarf að vera ótrúlega sterkur

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir braut blað í íslenskri íþróttasögu þegar hún tryggði sér sæti á LPGA-mótaröðinni í golfi í gær. Ólafía Þórunn lenti í 2. sæti á lokaúrtökumótinu fyrir mótaröðina og var hársbreidd frá sigri. Hún leggur mikið upp úr andlegum undirbúningi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×